Úrval - 01.06.1951, Qupperneq 28
26
■ÚRVAL
að áframhald gæti orðið á bat-
anum eftir fæðingu, en það brást
ætíð.
Af þessu ályktaði læknirinn,
að einhver vaki eða „hormón“
væri á ferðinni, er læknað gæti
sjúkdóminn; og beindist athygl-
in fljótlega að nýrnahettunum,
en þær framleiða fleiri en einn
vaka.
Þá tók þessi sami læknir eftir
því, að gigtin batnaði um tíma
ef menn fengu gulusótt, og gat
hann út frá því, með hliðsjón
af fyrri athugunum, getið sér
til um ákveðið efnsamband, sem
í lyfinu eða vakanum hlyti að
vera. Og um síðir fannst svo,
að tvö efni, annað framleitt
í heiladinglinum, en hitt í nýrna-
hettunum, gátu læknað gigtina.
Innbyrðis samband milli þess-
ara tveggja efna reyndist síðan
vera það, að heiladingulsefn-
ið vekur eða eykur framleiðslu
nýmahettanna á cortisone, og er
það síðamefnda því hið raun-
verulega læknandi efni.
Var nú hafizt handa um að
safna þessum kirtlum úr öllum
sláturhúsum og vinna úr þeim
hin þýðingarmiklu efni, og loks
fannst það svo í nautagalli, og
gerði það framleiðsluna ódýrari,
en þó er lyfið enn svo dýrt, að
varla er á færi almennings að
nota sér það án aðstoðar. Áhrif
lyfsins á gigtina eru ótvíræð:
karlægir vesalingar urðu aftur
ferðafærir og fullvinnandi eftir
skamma meðhöndlun, en sá
böggull fylgdi skammrifi, að ef
hætt var að gefa lyfið, kom gigt-
in aftur, þó leið oft nokkur tími
þar til einkenni komu aftur, og
var þá ekki annað að gera en
fara og fá sér eina innspýtingu
í viðbót.
Af þessu mætti álykta, að
gigtin væri vöntunarsjúkdómur
eins og sykursýkin, en allt á það
eftir að rannsakast betur.
Lyfið er einnig ágætt við
lungnaþembu, og hinum þráláta
húðsjúkdóm ,,psoriasis“, en báð-
ir þessir sjúkdómar stafa af of-
næmi vegna vöntunar vissra.
efna í blóðið.
Tilraunir með Lyf þetta gegn
öðrum sjúkdómum, hinum svo-
kölluðu farsóttum, hafa leitt í
ljós merkileg sannindi, viðvikj-
andi varnarkröftum líkamans,
og liggur á því sviði mikið rann-
sóknarstarf framundan.
Það hefur nefnilega sýnt sig,
að allflestir hinna næmu sýkla-
sjúkdóma batna á meðan lyfið
er gefið, en þó er aðeins um
sýndarbata að ræða, sem orsak-