Úrval - 01.06.1951, Side 30

Úrval - 01.06.1951, Side 30
28 ÚRVAL sérstaklega ef þau eru gefin samtímis, öll þrjú. En það sem unnlzt hefur hing- að til er að þakka ötulli heilsu- vernd, fyrst og fremst, samfara skynsamlegri notkun sérlyf ja og handlæknisaðgerða, og svo hef- ur enn bætzt við nýtt vopn í þessari baráttu, en það er bólu- setningin, sem raunar heyrir undir heilsuverndarsjónarmiðið. Á bólusetningunni eru þó agnú- ar, sem rýra gildi hennar, en það er, að eftir, að bólusetning- in hefur farið fram er ekki leng- ur hægt að greina þá nýsmit- uðu, með berklaprófi, frá þeim sem aldrei hafa smitazt, en að- eins verið bólusettir. Þannig verður erfiðara að leita uppi, þá sem sýkingarhætta stafar af, en það er undir vissum kringum- stæðrnn, eða á vissu stigi barátt- unnar, mjög þýðingarmikið. Ég verð þó að halda, eins og hér er komið þessum málum nú, að bólusetning sé sjálfsögð, ef hún aðeins er látin fara fram í vissum aldursflokkum, og fylgt eftir með endurbólusetningum, eftir þörfum. En jafnframt verð- ur svo að halda áfram að leita að þeim sjúku, með allsherjar rönt- genrannsóknum, við og við, hér eftir eins og hingað til. Um krabbameinið er það að segja, að þar er raunar að finna nærri fullkomna hliðstæðu berkl- anna. Og má segja, að ástand- ið í krabbameinsmálum okkar nú sé ekki ólíkt því, sem var í berklamálunum fyrir 15—20 árum, um það leyti, sem hin mikla sókn hófst, er skorið hef- ur berkladauðann niður í brot af því sem áður var. Við vitum, að sumt fólk er móttækilegra fyrir berkla en annað. Enginn veikist þó nema hann smitist. Líkt mun þessu farið með krabbameinið; þar eru sumir móttækilegri en aðrir. Þar er að vísu ekki með vissu vitað um vírussmitun, nema í fáum tilfellum, en hitt er víst, að krabbinn kemur helzt þar sem langvarandi erting hefur átt sér stað, þar sem frumurnar hafa veiklazt. Líkt er þessu og farið með berklana, þeir koma helzt í þau bein eða liði, sem áður hafa orðið fyrir einhverju hnjaski, en einnig í því tilfelli er móttækileikinn misjafn. En þrátt fyrir margvíslega ertingu, eru f jölmargir, sem alls ekki fá krabbamein. Áður fyrr voru allir hræddir við berklana, sérstaklega á vissu aldursskeiði. Nú eru allir hrædd-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.