Úrval - 01.06.1951, Page 124

Úrval - 01.06.1951, Page 124
122 ÚRVAL Það var dýrðlegasta hnoss á þessari jörð. Hún hafði ekki neitað hon- um um neitt, af því að hún vildi að hann fengi að drekka bikar ástarinnar í botn. Hún elskaði hann ekki — hann var viss um það. Hún myndi aldrei elska hann. Hún hafði gefið honum líkama sinn, en ekki hjarta sitt. Hann var aftur á móti orð- inn ástfanginn af þessari fögru stúlku — og hann harmaði það. Hann átti erfitt með að leyna tilfinningum sínum, en þó varð hann að gera það. Hann hafði lofað því, og auk þess hefði það verið hlægilegt, ef hann hefði farið að játa svo glæsilegri stúlku sem Myriame ást sína. Henri stóð við orð sín og minntist aldrei á ást sína, en þó varð nokkur breyting á kunningsskap þeirra er frá leið. Hann hafði ekki eins mikla ánægju af því að vera með henni í fjölmenni og hann hafði áð- ur haft. Hann varð afbrýði- samur og fór jafnvel að óska þess, að hún væri ekki eins fögur og hún var, því að hann var hræddur um hana fyrir öðr- um karlmönnum. Hún varð vör við afbrýði hans og fannst sér misboðið. Óhamingjusöm ást er eins og líkamlegur sjúkleiki: Annað- hvort færist hún í aukana og versnar, eða batnar og hverf- ur. Eftir því sem lengur leið, spillti eigingjörn ást Henris æ meir samverustundum þeirra. Þegar leið að því að opna skyldi Lundúnasýninguna, varð Henri enn daprari og óró- legri. Hann gat ekki til þess hugsað, að verða að skilja Myi'i- ame eftir í París. Loks neitaði hann algerlega að fara til Lond- on, en Maurice og Myriame gátu þó talið hann á það. Myriame fylgdi honum á brautarstöðina. ,,Ég verð ekki nema viku í burtu,“ sagði hann. ,,Þú mátt tii með að skrifa mér . . . . Þegar ég kem aftur, verður mikil breyting . . .“ Hún hreyfði sig ekki og það var eins og hún hefði ekki heyrt þessi orð hans. Hún horfði aðeins á hann eins og hún væri að reyna að segja honum eitt- hvað með augunum. Lestin mjakaðist af stað. „Vertu sæll, Henri . . .“ Hún kyssti hann á munninn. „Vertu sæll, elskan . . . Gleymdu mér ekki.“ Hann veifaði til hennar út um vagngluggann, þar til hann gat ekki eygt hana lengur. Að viku liðinni var Henri aftur á leiðinni til Parísar. Hann var kvíðinn, af því að Myriame hafði ekki skrifað. Hún hafði ekki einu sinni þakkað honum fyrir blómin, sem hann hafði sent henni. Var hún veik? Hann ók rakleitt heim til sín
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.