Úrval - 01.06.1954, Qupperneq 92

Úrval - 01.06.1954, Qupperneq 92
90 ÚRVAL mín og reyndi að brosa — það var eins og bros einmana barns. „Allan gat ekki komið“, stundi hún upp. „Móðir hans sendi eft- ir honum. Hún er veik — og hún getur ekki hýst okkur bæði.“ „Auðvitað getur hún það ekki,“ sagði Rústa, sem var nær- stödd. „Kerlingarherfan! Er hún ekki regluleg kerlingar- herfa, læknir?“ „Lýsingin er ekki falleg“, sagði ég — „en nákvæm.“ Allir hlógu nema Magga. Hún roðn- aði, og rödd hennar varð svo skræk, að allir hættu að hlæja. „Þetta er ekki sanngjarnt," sagði hún. „Þið hafið engan rétt til að tala svona. Þið skiljið þetta ekki. Hún hefur fórnað öllu fyrir Allan. Hann er það eina sem hún á. Og svo kom ég í spilið — þegar hann átti erfiðast og gat ekki gert sér grein fyrir því að ég var hon- mn ekki samboðin — ekki þeim samboðin. Ég er heimsk og Ijót — og einskisverð manneskja.“ Þessi berorða og ofsafengna játning kom svo óvænt að allir fóru hjá sér. Við blygðuðumst okkar. Rústa fór að hræra eitt- hvað í skál í mesta ákafa. „Þú ert konan hans,“ sagði hún. „Og það er miklu þýðingar- meira en að vera móðir, það get ég sagt þér. Við veljum okkur ekki mæður — en við veljum okkur lífsförunauta. 0g allir sem ætla að komast þar upp á milli — mæður eða aðrir — ættu skilið að þeim væri gefið dug- lega utanundir“. Magga þurrkaði tárin úr aug- unum og sagði lágt: „Þið megið ekki segja Allan frá því að ég hafi hegðað mér svona bjána- lega.“ Rústa rétti henni disk. „Þú þarft fyrst og fremst að fá þér að borða, veslings barn,“ sagði hún. # Eins og ávallt barst talið að lokum að framtíðinni — fyrst var rætt um jólafögnuðinn, þá um prófin og loksins það sem þá tæki við. Allir báru kvíð- boga fyrir framtíðinni enda þótt þeir létu lítið á því bera. Hvað gátu þeir lagt stund á? Þeir kunna að berjast og deyja. Þeir höfðu fært sönnur á það. En það var dálítið annað að lifa frið- samlegu lífi, eins og Jim hafði sagt. Veir voru illa imdir það búnir. Höfðu þeir annars lært nokkurn skapaðan hlut ? Þeir voru jafnvel í efa um það. „Hættið þessu kerlingarvæli!" sagði Rústa. „Hvað eruð þið hræddir við? Eg er að minnsta kosti ekki hrædd.“ Hún hristi hárlokkana frá heitu og rjóðu andlitinu. „Hvað sem á dynur, þá er þeim óhætt, sem getur búið til góðan mat.“ „En það geta ekki allir búið til góðan mat“, sagði Jim lágt. „Ekki get ég það.“ „Þú þarft þess ekki,“ sagði hún. „Þú átt mig.“ Hún hló gáskafullum hlátri: „Þú hugs-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.