Úrval - 01.12.1955, Page 58
54
ÚRVAL
töldu sig vera áfram í myrkri,
en þegar útfjólubláu ljósi var
varpað inn um rúðurnar, varð
uppi fótur og fit í þúfunni og
maurarnir fóru í ofboði að forða
eggjum og lirfum úr, ,,birtunni“,
sem í augum mannsins var niða-
myrkur.
—Magasinet.
Þjóðerni og níeringarþörf.
Eitthvert tíðræddasta vanda-
mál nútímans er fólksfjölgunin
í heiminum og yfirvofandi mat-
vælaskortur af hennar völdum.
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna (FAO)
hefur áram saman rannsakað
þessi mál og fundið aðferðir til
að komast að nákvæmari niður-
stöðum um vandamálin en hing-
að til hefur verið unnt. Einkum
er athyglisvert, hve næringar-
þörf manna virðist breytileg eft-
ir legu lands, loftslagi, atvinnu-
skijyrðum og kynþáttum.
I almennum skrifum um nær-
ingarþörf mannsins er hún jafn.
an talin 2500—3000 hitaeining-
ar, eftir því hve erfiða vinnu
menn stunda. En lesi maður
ferðalýsingar frá Austurlönd-
um, furðar maður sig mest á
því, að þjóðirnar sem þau
byggja, skuli yfirleitt vera til.
Kynslóð eftir kynslóð lifa og
tímgast þjóðir eins og Indverj-
ar og Kínverjar á næringu, sem
talin í hitaeiningum er álíka
mikill og skammtur sá sem fólki
í þýzkum fangabúðum nægði
ekki til að lifa af. Rannsóknir
FAO sýna, að næringarþörfina
verður að reikna miklu nákvæm-
ar og taka meira tillit til á-
standsins eins og það er á hverj-
um stað.
I stórum dráttum má skipta
íbúum jarðarinnar í þrjá flokka.
I fyrsta flokknum er meðal-
þyngd karlmanna 70 kg og
kvenna 60 kg. I þessum hópi eru
íbúar Norðurlanda og Norður-
Ameríku. I öðrum flokknum er
meðalþyngd karlmanna 65 kg
og kvenna 55 kg, og teljast þjóð-
ir Mið-Evrópu til hans. I þriðja
flokknum er meðalþyngd karla
aðeins 50 kg og kvenna 40 kg,
í þessum hópi eru t. d. íbúar
Suður-ítalíu. I Japan er meðal-
þyngd karla 65 kg og kvenna
49 kg; kínverskar konur eru að
meðaltali 145 sm á hæð og vega
aðeins 36,7 kg. Augljóst er, að
svona stærðarmunur hefur mik-
il áhrif á næringarþörfina, þann-
ig að hinar gömlu meðaltals-
tölur eiga hvergi nærri allsstað-
ar við.
Loftslagið hefur einnig mikil
áhrif á næringarþörfina. Efna-
skipti hjá „meðaltalsmannin-
um“ í hinum hlýju, röku héruð-
um við Mexíkóflóa er 10%
minna en meðaltal allrar banda-
rísku þjóðarinnar. Af því leið-
ir, að næringarþörf Suðurríkja-
manna er töluvert minni en t.
d. í ríkjunum Maines og Con-
necticut, þar sem loftslag er
svalt. Á Austur-Grænlandi er
efnaskipti fólksins 13% örara
en hjá íbúum Norður- og Mið-