Úrval - 01.12.1955, Blaðsíða 68
64
ÚR VAL
ég fór. Hinir innbornu höfðu
þyrpst að með körfur og fötur
áður en ég fór, og mér var sagt
að um kvöldið hefði ekki verið
kjöttætla eftir á beinunum.
Eftir á voru menn að sjálf-
sögðu með endalausar bolla-
leggingar um það hvernig fíll-
inn hefði verið skotinn. Eig-
andinn varð sárreiður, en af
því að hann var ekki nema Ind-
verji gat hann ekkert gert.
Lagalega séð hafði ég farið
rétt að, því að óðan fíl verður
að skjóta eins og óðan hund,
þegar eigandinn getur ekki gætt
hans. Meðal Evrópumanna voru
skoðanir skiptar. Hinir eldri
töldu að ég hefði farið rétt að,
en hinum yngri fannst það synd
að drepa fíl einungis vegna
þess að hann hefði drepið ind-
verskan kúlí. Hann var ólíkt
meira virði en vesæll kúli! Eft-
ir á þótti mér það betra, að
fíllinn skyldi hafa drepið kúl-
inn. Það gaf mér nægilega á-
tyllu og lagalegan rétt til að
skjóta fílinn. En oft hef ég velt
því fyrir mér hvort nokkur
hinna hafi skilið að ég gerði
það eingöngu til þess að kom-
ast hjá að verða mér til at-
hlægis.
□---□
Það er mjög algengur misskilningur meðal kvenfólks að
halda, að þegar þær hafa eignast bai'n séu þær orðnar mæður.
Slíkt er jafnmikil fjai'stæða og að trúa því, að maður verði
píanóleikari af því að eignast píanó.
— English Digest.
ÓÞARFUR MILLILIÐUR.
Það var failinn 1000 króna víxill á Jakob og hann hafði
enga peninga til að borga hann. I vandræðum sínum fór
hann til Harry vinar síns og bað hann að iána sér 1000
krónur þangað til á miðvikudag.
Harry gerði það. Á miðvikudag var Jakob jafnilla settur
og fói' til Leós vinar síns og bað hann að lána sér 1000 krónur
til laugardags.
Leó gerði það og fór með peningana til Harrys. Á laugar-
dag voru ástæðui' Jakobs óbreyttar og fór hann þá aftur
til Harrys. „Harry,“ sagði hann, ,,af því að ég var nú svo
skilvís við þig um daginn, heldurðu þú lánir mér þá ekki 1000
krónur aftur þangað til á miðvikudag?"
Harry gerði það og Jakob fór með peningana til Leós.
Þannig gekk þetta í sex mánuði. Þá bar svo við einn dag,
að Jakob hitti þá Harry og Leó saman. ,,Þið hafið nú verið
svo greiðviknir við mig undanfarna sex mánuði," sagði hann.
„Og ég hef verið á sífelldum þönum á milli ykkar með þessa
peninga. Hvernig væri nú að sleppa þessum óþarfa millilið
og þið borgið hvor öðrum í staðinn þessa peninga?“
— Voo Doo.