Úrval - 01.12.1955, Page 85

Úrval - 01.12.1955, Page 85
SJÁLFSKIPAÐA ÞERNAN OKKAR 1 SINGAPORE 81 með pappírsljóskerum og gaf okkur kryddaðar tunglkökur í heila viku. Og á nýársfagnaði Kínverja, sem venjulega stóð tvær vikur í febrúar, gaf hún sér lausan tauminn. Hún hvarf þá með lagskonum sínum í heila viku. Þegar hún kom slangrandi heim, með pappírshúfu slútandi fram á aðra augabrúnina og sterkan vínþef úr vitunum, var hún alltaf með gjafir handa öll- um, einnig hundinum, páfa- gauknum og apanum. Ama lét sig heimsmálin litlu skipta, en hún fylgdist af lífi og sál með því sem gerðist í borginni. Á hverjum morgni las Glókollur fyrir hana fréttirnar í Straits Times. Þannig fékk hún vitneskju um Tan Eng Boon málið. Tan var sex mánaða kínversk- ur drengur. Musterisprestur hafði sagt fátækri móður hans, að ef hún léti hann ekki frá sér mundi hann deyja. Mynd af Tan og móður hans birtist í Straits Times og sagan um það hvers- vegna hún yrði að gefa hann. Það var misráðið að láta Ömu sjá myndina. Eng Boon var ein- staklega fallegur drengur, og Ama hafði yndi af börnum. Hún kvaðst þegar ætla að taka drenginn í fóstur. Það atvikaðist þó svo, að súlt- aninn í einu ríkinu á Maiaja varð fyrri til; hann sótti Eng Boon í Rolls Royce bílnum sín- um og ók með hann heim í höll sína. I marga daga á eftir var- Ama ekki mönnum sinnandi, hvernig svo sem við reyndum að hressa hana. En dag nokk- urn þegar ég kom heim gekk Ama um syngjandi eins og spör- fugl. Ég spurði Glókoll hvaú hefði komið fyrir hana. ,,Ég sagði henni að við ættum von á barni,“ sagði hún kankvís. Þetta voru nýjar fréttir fyrir mig. „Hvenær kom það nú til?“ spurði ég. Glókollur yppti öxlum. ,,Það er að vísu ekki enn komið til, en nú verður ekki lengur dregið að _hef jast handa.“ Ég sagði ekkert. Hvað gerir maður ekki nú á dögum til að halda góðri stúlku! o-cy-o ST J ÖRNMÁL AHÆFILEIKI. Sir Winston Churchill var eitt sinn spurður að því hvaða hæfiieika hann teldi nauðsynlegastan fyrir stjórnmálamann. Án þess að hika svaraði hann: ,,Það er hæfileikinn til að segja. fyrir um hvað gerast muni á morgun, næsta mánuð og næsta ár —- og til að skýra eftir á hversvegna það gerðist ekki.“ •— Reader’s Digest,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.