Úrval - 01.12.1955, Page 104

Úrval - 01.12.1955, Page 104
100 ÚRVAL iinni og skyndilega varð hon- nm Ijóst, hvað Comstock hafði í huga. Nú skildi hann hvers- vegna Comstock var svona ör- látur við eyjarskeggja. Hann fór að velta fyrir sér, hve marg- ar byssur hann væri búinn að gefa þeim. Hann hafði látið sem hann hefði ekki annað vopn en sveðjuna, en sennilega var hann nú önnum kafinn við að kenna hinum innbornu að fara með byssur og skipuleggja þá til árásar á félaga sína. Payne bjóst við árásinni þá og þegar. Innan skamms var orðið al- dimmt umhverfis tjaldbúðirnar. Payne valdi nokkra menn úr hópnum, fékk þeim hlaðnar byssur og lét þá standa vörð. Hann áminnti þá um að vera vara um sig. Menn lögðust til svefns í tjaldbúðunum. Nóttin leið. Það var farið að birta af degi og ekki sást til neinna mannaferða. TJti á lóninu lá Globe og siglu- tré og i-eiða bar við himinninn. Sólin var um það bil að koma upp þegar einn varðmaðurinn staðnæmdist skyndilega á göngu sinni, starði í áttina til þorps- ins og hljóp síðan sem tætur toguðu til tjaldanna. ,,Hann er að koma!“æptivörð- urinn. „Comstock er að koma!“ Eftir örstutta stund voru Payne og þrír félagar hans komnir út úr tjaldinu. Þeir voru allir með byssur. Þeir komu auga á Comstock í svo sem mílu fjar- lægð, en síðan hvarf hann á bak við runna. Mennirnir fjórir krupu niður andspænis þeim stað, þar sem þeir bjuggust við að hann kæmi aftur í ljós. Allt í einu sást á höfuð Com- stocks upp úr kjarrinu. Hann gekk hratt í áttina til þeirra. Hann var í þann veginn að draga sveðjuna úr slíðrum þeg- ar hann kom auga á fyrirsáturs- mennina. Hann nam staðar og starði á byssuhlaupin, sem beint var gegn honum. „Skjótið mig ekki!“ hrópaði hann. „Skjótið mig ekki! Ég skal ekki gera ykkur neitt mein.“ Það var hleypt af öllum byssunum í einu. Comstock riðaði og féll síðan á grúfu í kóralsandinn. Samúel Comstock hafði verið meira en ár að undirbúa uppreisnina gegn Worth skipstjóra. Það liðu ekki nema þrjár vikur þar til dauða skipstjórans var hefnt. Hin fullkomna uppreisn var farin út um þúfur. En þó að Samúel Comstock væri dauður, munaði samt mjóu að uppreisnin hepnaðist. Þegar Iíkið hafði verið greftr- að, gerðist Silas Payne foringi uppreisnarmanna. Hann mælti svo fyrir, að ekki skyldi flutt meira af birgðum í land að sinni. Hann setti tvo menn á vörð við tjaldbúðirnar og sex um borð í skipið. Payne og aðrir skipverjar, að undanteknum vörðunum, lögð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.