Úrval - 01.12.1955, Side 111
UPPREISN UM BORÐ
107
köllum þetta vasahníf. Sjáðu,
hann opnast svona!“
Lugoma þurrkaði sér um aug-
un og fór að opna hnífinn og
loka honum hvað eftir annað.
Hann leit á Hussey og gleðisvip-
ur færðist yfir andlit hans.
Þegar mennirnir voru að stíga
út í bátinn, gekk Lugoma til
Hussey og horfði þögull í augu
hans góða stund. Síðan lyfti
hann hendinni og strauk ljós-
gult hár piltsins.
Cyrus Hussey sá það síðast
til Lugoma, að hann gekk álút-
ur upp frá sjónum og var alltaf
að opna og loka nýja vasahnífn-
um, gjöf piltsins með sólgullna
hárið, piltsins, sem hann myndi
aldrei líta augum framar.
□---□
Hugleiðingar lesanda um —
„Sidgœði án trúar"\
tJrváli liefur horizt eftirfarandi grein frá einum lesanda sín-
um. 1 bréfi, sem fylgdi greininni, segir ,m. a.: „Þetta eru hugleið-
ingar mínar út af erindi Margaret Knight er birtist í Úrvali snemma
á árinu. Þar sem engir hafa látið svo lítið að minnast þcssa erindis,
hélt ég kannski að þér gœtuð tekið þetta inn í meginmál Úrvals
(ekki kápuna). — Þá kemur nœst spurningin um ritháttinn, efni
og innihalda. Kannslci þetta sé eitthvað utan við almennilegt vcl-
sœmi. Þér dcemið. Auðvitað mun ég ekki gráta þó að ég fái blöðin
heimsend ... þó vantar mig bagálega spámannstúrbaninn og
prestshempuna, á ckkert annað en gatslitna stórhríðarúlpu og
margþvœlda lambhúshettu, en ég lield að þessi skinandi fátcekt
sé verulega heiðarleg. Bn ég þarf að biðja yður að virða á betra
veg slœman frágang á blöðunum. Ég set nú ein gleraugun utan yfir
önnur til að geta ofurlítið lesið og párað. Ég er 75>/2 árs og held
ég að þetta sé einnig heiðarleg fátœkt.“
I 1. hefti Úrvals 1955 birtast
í þýðingu tveir fyrirlestrar, áð-
ur fluttir í brezka útvarpinu,
eftir sálfræðing Margaret
Knight, er nefnast „Siðgæði án
trúar“.
Af sérstökum ástæðum hefur
mér ekki gefizt kostur á að
kynna mér þetta ágæta erindi
fyrr en nú alveg nýlega. En það
er háttur minn, að láta sem
fæst framhjá 'mér fara, sem
verulegt nýjabragð er að, og
ætla mætti að nýtzt gæti til
fróðleiks og andlegrar hressing-
ar, svo sem takmarkaðir leik-