Úrval - 01.12.1955, Page 116
112
ÚRVAL
byggja trúnni svona skilyrðis-
laust. Það er þarflaust, það er
ekki hægt. Ég hygg að það sé
heldur ekki meining frúarinnar.
Hún hefur aðeins í huga hinar
viðteknu gömlu höfuðsetningar,
sem ber uppi hugtakið trú.
Að trúa á lífið -—- jarðlífið —
eins og okkur er fært að skynja
það og skilja og vera í fullri
sátt við það — að trúa á vöxt
þess og viðgang, þróun, þroska
og varanleik — það er sannar-
lega heilbrigð trú og fullnægj-
andi. Og svo byggjum við upp
siðgæðismatið og veljum fyrir-
myndimar í samræmi við þá
rökrænu trú.
En höfuðuppgötvunin, höfuð-
sigurinn framundan gerist þá
er við skiljum fyrst, að guðs-
ríkið er hér mitt á meðal okk-
ar og að annar heimur, annað
líf, er ávallt og varanleg á næstu
grösum, heima við hvers manns
dyr. Það eru sem sé engar synd-
ir guði að kenna. Mennirnir eiga
sannarlega að vera, með gnðs
hjálp, „eigin gæfu smiðir“. —
Hæg eru heimatökin.
Björn Þorkelsson.
SKOTASAGA.
Tveir Skotar, Pit og Pat, voru með strandferðaskipi á leið til
Aberdeen. Veður var slæmt, úfinn sjór og skipið valt mikið. Pit
var hræddur og hélt sér i Pat, sem hæddist að honum fyrir
sjóhræðsluna.
,,Þú getur trútt um talað,“ sagði Pit, „þú ert flugsyndur, en ég
kann ekki að synda.“ Rétt í þessu reið stór alda undir skipið
og Pit greip dauðahaldi í Pat. „Lánaðu mér eitt penny,“ sagði
hann. „Máltækið segir, að Skoti deyi ekki ráðalaus meðan hann
hefur penny í vasanum.“
Pat varð við bón Pits og það sem eftir var ferðarinnar var Pit
rólegur. Þegar þeir stigu á land, skilaði Pit skildingnum.
„Ekkert skil ég, að þú, svona greindur maður, skulir vera svona
hjátrúafullur,“ sagði Pat.
„Þetta átti ekkert skylt við hjátrú,“ sagði Pit, „en ég vissi, að
á meðan ég væri með skildinginn þinn í vasanum mundir þú
cinskis íáta ófreistað til að bjarga mér, ef skipið sykki.“
— Der Standpunkt.
JJJJ 1'l A J Ritstjóri: Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16. Af-
II F JtL JU greiðsla Tjarnargötu 4, pósthólf 365, Reykjavík.
Kemur út á'tta sinnum á ári. Verð kr. 12,50 hvert hefti í lausasölu.
Áskriftarverð 85 kr. á ári. Utanáskrift tímaritsins er: Úrval, póst-
hólf 365, Reykjavík.
ÚTGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H. F.