Bókatíðindi - 01.12.2002, Síða 12

Bókatíðindi - 01.12.2002, Síða 12
íslenskar barna-og unglingabækur LÚSASTRÍÐIÐ Brynhildur Þórarinsdóttir Um miðjan febrúar, þeg- ar langt er til páska og jólin löngu liðin, gera ellefu ára krakkar næst- um hvað sem er til að fá frí í skólanum. Því er lúsin sem Benni ber með sér heim af KR-vellinum í ókunnri húfu afar kær- komin viðbót við 6. MG. Drepfyndin saga um ótrúlega viku í lífi þriggja vina sem fá nýstárlega hugmynd. Lúsastríðið er fyrsta bók höfundar. Anna Cynthia Leplar myndskreytti. 136 bls. Mál og menning ISBN 9979-3-2364-7 Leiðb.verð: 2.490 kr. MARTA SWIARTA Gerður Kristný Marta er ósköp venjuleg tíu ára stelpa og lífið gengur sinn vanagang. En eftir jólafríið er allt í lausu lofti og hvað gerir stelpa þá? Marta kemst að því að tilveran getur aftur orðið bærileg með því að blanda saman furðulegustu hlutum: Hlaupormum, kúreka- höttum, súrum froskum, Egils sögu, lambi að leika sér við og - því sem skiptir allra mestu máli - hugrekki. Nógu af hug- rekki. Marta smarta er fyrsta barnabók Gerðar Kristnýjar. Halldór Bald- ursson myndskreytti. 154 bls. Mál og menning ISBN 9979-3-2336-1 Leiðb.verð: 2.490 kr. nennekkja feisada NENNEKKJA FEISAÐA Alvöru unglingabók Valgeir Magnússon „Bráðskemmtileg og uppbyggjandi bók fyrir unglinga, en ekki ætluð lesendum yngri en 13 ára. Hún lýsir hörðum heimi þeirra unglinga sem lenda í ruglinu", eru ummæli nemanda úr uppeldisfræði í Háskól- anum. Bókin er skrifuð af mikilli innlifun í hug- arheim unglinga, hún er opinská og fjallar á hisp- urslausan hátt um ást- ina, heiðarleika, kynlíf, traust, fíkniefni og ofbeldi. Bókin tekur á ýmsum vandamálum dekkri hliða mannlífsins en er jafnframt uppfull af húmor og spaugilegum atvikum. Höfundur bók- arinnar er hinn lands- þekkti húmoristi, Valli sport, sem er annar umsjónarmanna þáttar- ins „Með hausverk". Þetta er önnur unglinga- bók Valla, en fyrri bókin hlaut frábærar viðtökur og var ein söluhæsta unglingabókin jólin 2000. Bókin er jafnframt sjálfstætt framhald þeirr- ar bókar. 164 bls. Þyrnirós ISBN 9979-9551-1-2 Leiðb.verð: 2.990 kr. NJÁLA Brynhildur Þórarins- dóttir endursagði Margrét Laxness myndskreytti Njáls saga hefur lifað með þjóðinni í aldaraðir og sjaldan verið vinsælli en einmitt nú. Hér er hún gerð aðgengileg fyrir börn og unglinga í knappri og auðlæsilegri endursögn Brynhildar Þórarinsdóttur, sem þó kemur sögunni og stór- brotnum persónum hennar vel til skila. Bók- in er prýdd glæsilegum myndum eftir Margréti E. Laxness og auk þess eru yfir 60 ljósmyndir í bókinni. Einnig eru hér fjölmargir fróðleiksmolar um sögusvið Njálu og sögutímann. 61 bls. Mál og menning ISBN 9979-3-2347-7 Leiðb.verð: 2.690 kr. Peð á plánctunni Jörð Olga buArun Árnddótlir PEÐ ÁPLÁNETUNNI JÖRÐ Olga Guðrún Árnadóttir „Leynilegur ástmaður minn stendur í eldheitu sambandi við barbí- dúkku ... Hólmfríður handavinnubani lætur eins og ég sé með fjórtán þumalputta ... auk þess hóta kaloríudraugarnir að breyta mér í súmó- glímukappa með tveggja sæta rass.“ Saga hinnar fjórtán ára Möggu Stínu. Peð á plánetunni Jörð sló rækilega í gegn þegar hún kom fyrst út og rifj- aði upp fyrir lesendum meistaraleg tök Olgu Guðrúnar á bókmennt- um fyrir unglinga. Nú endurútgefin í kilju. 174 bls., kilja. Mál og menning ISBN 9979-3-2328-0 Leiðb.verð: 1.599 kr. 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.