Bókatíðindi - 01.12.2002, Blaðsíða 130
Ævisögur og endurminningar
FRIDA
Barbara Mujico
Þýðing: Helga Þórarins-
dóttir
Frá blautu barnsbeini
var Frida Kahlo sérlund-
uð og gædd óvenjulegum
hæfileikum ... og þessi
mexíkóska listakona hef-
ur í tímans rás orðið að
átrúnaðargoði kvenna
um allan heim. Málverk
hennar eru táknmyndir
um sköpunarmátt og sig-
urvilja kvenna og ævi
hennar er sveipuð dular-
fullum ljóma. Þrátt fyrir
háskaleg veikindi og
áföll hélt hún ótrauð
áfram á listabrautinni og
aflaði sér heimsfrægðar.
Hún giftist öðrum fræg-
um listamanni, Diego
Rivera, og ástríðuþrung-
ið hjónaband þeirra, sem
einkenndist af afbrýði-
semi og svikum, hefur
lengi vakið vangaveltur
og örvað ímyndunar-
aflið.
Frida er snilldarlega
skrifuð söguleg skáld-
saga um stórbrotna ein-
staklinga og samkeppni
milli systra sem báðar
sækjast eftir ástum sama
mannsins.
„Lifandi ... brennandi
af dramatískum tilfinn-
ingahita." The New York
Times Book Review
416 bls. auk mynda-
síðna.
JPV IJTGÁFA
ISBN 9979-761-77-6
Leiðb.verð: 4.480 kr.
GLATAÐI SONURINN
SEM SNERI AFTUR
Sögubrot Pálma
Benediktssonar
Jónas Jónasson
Pálmi Benediktsson frá
Húsavík ætlaði að verða
tæknifræðingur eða jafn-
vel prestur en það átti
öðruvísi að fara. Guðinn
Bakkus slóst í för með
honum og saman gengu
þeir svo snúðugt um
gleðinnar dyr að
afskekktur garðbekkur
varð að lokum eina
athvarfið. Þetta er saga
íslendings sem sökk til
botns í eiturlyfjaneyslu
og lenti í ótrúlegum
þrengingum, en braust
úr þeim viðjum og hefur
síðan hjálpað mörgum í
svipuðum aðstæðum.
Jónas Jónasson rithöf-
undur og útvarpsmaður
skráði.
152 bls.
Skjaldborg
ISBN 9979-57-535-2
Leiðb.verð: 3.980 kr.
HALLDÓR LAXNESS -
LÍF í SKÁLDSKAP
Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
bregður hér upp afar per-
sónulegri mynd af Hall-
dóri Laxness. Áður óbirt
samtöl þeirra frá þeim
árum er Ólafur var útgef-
andi Halldórs eru rauður
þráður bókarinnar en
inn í þau er fléttað marg-
víslegu athyglisverðu
efni, meðal annars úr
einkabréfum skáldsins,
minnisbókum hans og
handritum, sem aldrei
voru gefin út, en fæst af
þessu hefur áður komið
fyrir almenningssjónir.
Textinn glitrar af orð-
snilld og gamansemi
skáldsins og varpar bók-
in nýju og einkar for-
vitnilegu ljósi á líf Hall-
dórs Laxness.
300 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1658-1
Leiðb.verð: 4.990 kr.
HEIMA OG HEIMAN
Erlendur Guðmundsson
Erlendur fluttist vestur
um haf um aldamótin
1900, en öfugt við marga
sem sigldu af landi brott,
fullsaddir af basli og
fátækt, fór hann nauðug-
ur - hann var andstæð-
ingur vesturferðanna.
Saga hans er einstæð
heimild um aldarhætti,
siði, leiki, siðvenjur og
lifnaðarhætti fólks á
íslandi undir lok 19. ald-
ar. Hún bregður ljósi á
harðneskjulegt líf Islend-
inga við Winnipegvatn
og greinir umbúðalaust
frá þeim deilum og
vandamálum sem settu
svip sinn á samfélag
þeirra. Áhrifamiklar
minningar íslensks
alþýðumanns enda gefa
stílgáfa hans og gagnrýn-
in sýn verkinu einstætt
gildi. Kristján B. Jónas-
son ritar eftirmála.
352 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2254-3
Leiðb.verð: 4.690 kr.
HJÁLP AÐ HANDAN
Sex læknamiðlar
segja frá
Svava Jónsdóttir
128