Úrval - 01.03.1970, Side 14
12
ÚRVAL
franskan loðhund, sem heitir Mar-
cel. Hann gengur um í búðinni í
hundanáttfötum og öðrum tízfcu-
fötum fyrir hunda. Einnig sýnir
hann ágæti hundarúmanna, sem
verzlunin selur. Launin, sem Marcel
hefur, eru 100 krónur á viku.
Það kallast nú lítið fyrir þessa
vinnu.
HIN FAGRA GRACE, furstaynja í
Monaco hefur yndi af að segja sög-
ur af börnunum sínum. Hún hefur
sagt:
— Á afmælidaginn sinn fær Caro-
lína alltaf fjöldann allan af heilla-
óskum. Henni þykir vænt um það
og gætir þess að þeim sé haldið
saman í sérstakri bók Albert litli
fær einnig mikið af kveðjum á
kortum. Honum þykir einnig vænt
um það, en bara á annan hátt. Hann
borðar kortin.
í SAMKVÆMI NOKKRU fékk Sir
Anthony Eden mjög málgefna konu
fyrir borðdömu. Hún reyndi árang-
urslaust að fá hann í samræður við
sig, en þegar hún fékk aðeins stutt
svör, og orðin já og nei, frá þessum
fræga stjórnmálamanni, sagði hún
svolítið gröm:
Hef ég ekki rétt fyrir mér, Sir
Anthony, að þér kjósið heldur döm-
ur, sem kunna að tala, heldur en
aðrar?
— Hvaða aðrar? spurði Eden.
VERIÐ VAR AÐ AUGLÝSA kvik-
mynd, sem Brigitte Bardot lék aðal-
hlutverkið í, ásamt Jean Gabin. í
auglýsingunni var nafn hans haft á
undan hennar. Þá á hún að hafa
sagt:
— Þetta finnst mér nú hart, og
Jean Gabin fór ekki einu sinni úr
skyrtunni.
AMERÍSKA SKÁLDKONAN Mig-
non G. Eberhart er þekkt fyrir hin-
ar spennandi leynilögreglusögur
sínar. Dag einn stóð hún á Madison
Avenue í New York, þegar hún sá
andlit, sem henni fannst hún kann-
ast við. Hún kinkaði vingjarnlega
kolli til mannsins, sem svaraði
kveðjunni og stanzaði hjá henni.
Þau tóku tal saman, en bæði virtust
vera í hálfgerðum vandræðum með
að muna, hvar þau hefðu hitzt áður.
Að lokum kvöddust þau, og maður-
inn sagði:
— Jæja.... það var sannarlega
gaman að hitta yður ... þér ættuð
að skila kveðju heim til yðar.
Hann gekk í burtu, og nokkru
seinna uppgötvaði frú Eberahrt,
hver maðurinn var. Hún hafði al-
drei hitt hann í eigin persónu fyrr,
aðeins séð hann á myndum.
FALLBYSSUKÓNGURINN frægi,
hinn sænski Leoni, ferðast með stóra
og þunga fallbyssu með sér á sýn-
ingarferðum sínum Þegar hann var
í London eitt sinn og ætlaði til Har-
wich, spurði hann lögregluþjón í
úthverfi London til vegar. Leoni
spurði á lýtalausri ensku, en lög-
regluþjónninn svaraði honum á
þýzku. Leoni er sænskur ríkisborg-
ari, en fæddur í Þýzkalandi. Hann
spurði því undrandi: — Hvernig
vitið þér að ég er þýzkur að upp-
runa? Lögregluþjónninn brosti og
benti á flutingabílinn, sem Leoni
var með. — Það er nú auðvelt. Þér
eruð með fallbyssu með yður.