Goðasteinn - 01.03.1968, Page 66
Á 19. öld áttu Skaftfellingar tvo ágæta hornasmiði, ef sagnir
segja satt, þá Davíð Jónsson, er nefndur var Mála-Davíð, og son
hans, Símon mállausa. 1 Hrólfsstaðahelli í Landsveit er eitt drykkj-
arhorn Mála-Davíðs, prýtt fíngjörfu blaðskrúði. Norður á Reykjum
í Hrútafirði, í Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna sá ég
horn sömu ættar og þótti undrum sæta. Brátt komst ég þó að raun
um að hornið hafi verið í eigu Skaftfellingsins Brynjólfs Vigfús-
sonar frá Söndum í Meðallandi. Kynni útskurður þess að vera
verk Davíðs eða Símonar, því margt er líkt með skyldum.
Alltaf er vandi að fara í manngreinarálit, en líklega hafa Öræf-
ingar átt merkasta bónda Islands á 18. öld - og þá kem ég aftur
að horninu góða frá Gularási.
Sveinn Pálsson náttúrufræðingur og læknir kom að Skaftafelli
í Öræfum sumarið 1793 til Jóns Einarssonar, er þar bjó þá. Segir
Sveinn, að Jón hafi lært af eigin rammleik latneska, gríska og he-
breska málfræði og verið mjög vel að sér í þýzku og dönsku en
mest kveðið þó að hagleik hans á tré, járn og látún. Lýsir Sveinn
byssu, er Jón hafði smíðað af miklum hagleik. Faðir Jóns, Einar
Jónsson (f. um 1701), var einnig frægur smiður. Lýsir Eggert Ólafs-
son byssusmíði hans í ferðabók sinni. Systkinin í Gularási í Land-
eyjum eru niðjar Jóns Einarssonar og segja hiklaust, að drykkjar-
hornið, sem komið er frá þeim að Skógum, sé verk Jóns, og ekkert
í útliti þess afsannar það.
Einar Jónsson í Skaftafelli var giftur Guðlaugu Bjarnadóttur
bónda á Geirlandi, Eiríkssonar í Holti á Síðu, Jónssonar. Jón son-
ur þeirra (f. um 1731) giftist Guðrúnu Jónsdóttur frá Núpsstað,
Bjarnasonar á Geirlandi, Eiríkssonar. Sonur Jóns og Guðrúnar,
Bjarni í Skaftafelli, giftist Guðnýju Þorsteinsdóttur frá Svínafelli.
Sonur þeirra, Jón í Skaftafelli, giftist Guðrúnu Sigurðardóttur frá
Svínafelli. Móðir hennar, Ljótunn, var systir Bjarna í Skaftafelli.
Sonur Jóns og Guðrúnar var Einar í Skaftafelli, er giftur var Þór-
unni Pálsdóttur, og voru þau foreldrar Guðrúnar, er giftist Þor-
steini Guðmundssyni frá Maríubakka (f. á Hnappavöllum 24. 11.
1865). Er þá rakin ætt Jóns Einarssonar til systkinanna í Gularási.
Einar afi þeirra hafði drykkjarhornið undir vökvun í smölun og
í fjöruferðum, að mér er sagt, og ósjaldan mun það hafa verið með
64
Goðasteinn