Goðasteinn - 01.03.1968, Page 83
Björg frá Ásólfsskála:
Gamalt
Landeyjaskip
Faðir minn, Jón Guðnason í Hallgeirsey, var í senn eigandi og
formaður skips, sem hét Sigursæll. Það var byggt um 1850 og
haldið úti á vetrarvertíðum í Vestmannaeyjum um mörg ár og
auk þess notað til aðdrátta, því Landeyingar verzluðu mikið við
Vestmannaeyinga á þeim árum. Má geta þess, að eitt vor voru
farnar 13 ferðir milli lands og eyja á Sigursæl. Einnig var farið
á honum til Dranga, eins og það var kallað. Þangað var algengt
að fara um Jónsmessuleytið að sækja sér í soðið og var oft kom-
ið með fallegan afla að landi. Var þá farið að heiman seinni
part dags og kveldkulið notað til þess að létta róðurinn. Einnig
mun hafa verið sætt sjávarföllum. Um sólarhringur fór í þessar
ferðir, ef allt gekk eftir áætlun.
Sigursæll var farsælt og gott skip, og henti aldrei slys á hon-
um. Og svo hverf ég sem snöggvast inn í liðna tíð. Lítil stúlka
stendur í Hallgeirseyjarsandi og horfir á eftir skipi, sem siglir
frá landi út á gullið haf:
Goðasteinn
81