Vísir - 17.06.1944, Page 64

Vísir - 17.06.1944, Page 64
64 VlSIR ÞJÖÐHÁTÍÐARBLAÐ til fiskveiða, 103 rúml. br. Vestmannaeyjahöfn. Þaðan hafa um langan tíma verið gerðir út flestir vélbátar til fiskveiða. Nýtízku vélskip nam 63% af heildaraflanum. Frá árinu 1936 hefir hundraðs- hluti hans ekki farið niður fyrir 40, að undanteknu árinu 1941, er hann nam aðeins 30 rúm- lega, en það ár mátti hexta að síldveiðarnar brygðust að mestu. Hefir þýðing síldveið- anna því vaxið mjög hin síðari árin og er útlit á, að þær eigi enn eftir að verða þýðingar- meiri. Hin siðari ár hefir sifellt verið lögð meiri áherzla á síld- veiðarnar og hefir mikið verið gert til að bæta móttökuskilyrð- in í landi, en á því hefir löngum strandað. Verður komið nánar að því hér á eftir. Verkun og nýting aflans. Lengi fram eftir öldum var verkun og nýting fiskaflans á mjög frumstæðu stigi i landinu. Var fiskurinn eingöngu hertur og þannig fluttur út. Löngu áð- ur en farið var að nota salt við fiskverkun hér á landi, þekktist sú verkunaraðferð erlendis, en salt fékkst þá eigi hér, hvorki við því verði, að mönnum væri kleift að nota það í fisk, né heldur nægilegt magn. Það var eigi fyrr en á 19. öld, að salt- notkun varð hér almenn við fiskverkun og undir lok aldar- innar nxátti heita að barðfisk- verkun væri með öllu horfin, nema innanlandsneyzla. Stóð svo, þar til nú skömmu fyrir styrjöldina, að yfirgnæfandi meiri hluti þorskaflans var salt- aður og |)annig fluttur út. Með komu togaranna, skömmu eftir aldamótin, hófst þó útflutning- ur ísvarins fisks og hefir ávallt noklcur hluti þorskaflans verið fluttur út þannig. I stýrjöld þeirri, er nú stend- ur, urðu alger umskipti hvað þetta snerti, þannig að yfirgnæf- andi meiri hluti þorskaflans hef- ir verið fluttur út isvarinn, en saltfiskurinn er því nær með öllu horfinn. Á s.l ári voru að- eins 2,4% þorskaflans verkuð í salt, en rúmlega 80% flutt út ís- varið. Gera má þó ráð fyrir, að hér sé um tímabundið fyrir- bæri að ræða, og umskipti muni aftur verða að styrjöldinni lok- inni, en hvað þá tekur við er erfitt að segja fyrir um nú. Hin síðari ár hefir tekið að ryðja sér til rúms ný aðferð við verkun þorskaflans, sem virðist eiga mikla framtíð fyrir sér. Er það frysting fisks. Ishús til geymslu á síld til beitu og matvælum hafa verið til hér á landi frá því skömmu fyrir aldamótin síðustu. Fryst- ing á fiski til útflutnings átti sér þó ekki stað fyrr en löngu seinna og það var ekki fyrr en fyrir einum tug ára, að fram- kvæmdir í þá átt hófust fyrir alvöru. Hafa orðið stórstígar framfarir á þessu sviði hin síð- ustu ár og fiskfrystiiðnaðurinn er nú orðinn veigamikill þátt- ur í atvinnulífinu. Á síðastl. ári voru 15,8% ])orskaflans unnin 1 frystihúsunum og verður yænt- anlega mun meira á þessu ári. Svo sem áður segir lagðist herzla á fiski, ncma til neyzlu innanlands, með öllu niður um þar til nú fyrir fáum árum, að þessi verkunaraðferð var aftur upp tekin sem einn liður i þeirri viðleitni, að auka fjölbreyttni framleiðslunnar. Var allmikið hert af fiski á árunum fyrir styrjöldina, en sú verkunarað- ferð hefir nú ])ví nær með öllu orðið að þoka fyrir ísvarða fisk- inum. All-langt mun nú síðan fyrst var tekið að sjóða niður fisk- meti hér á landi, en ávallt hef- ir ])að verið í smáum stíl. — Skömmu fyrir styrjöldina var hafizt handa um niðursuðu fiskmetis, en allt hefir það þó orðið í smærri mæli en menn munu hafa gert sér vonir um. Styrjöldin, sem hefði átt að geta orðið þessum iðnaði lyftistöng, einkum með tilliti til opnunar markaða, varð honum þvert á móti fjötur um fót og hafa ýms- ar af þeim verksmiðjum, sem höfðu hafið starfrækslu, orðið að hætta, eða draga saman segl- in. Er þó vandséð annað en nið- ursuða fiskmetis eigi framtíð fyrir sér hér á landi. Hefir hér verið getið hinna helztu verkunaraðferða á þeim afla, er veiddur er á þorskveið- unum, og skal nú að nokkru skýrt frá verkun og nýtingu síldarinnar. Eins og áður hefir getið ver- ið, var síld sú, er Islendingar veiddu fyrst, notuð eingöngu til beitu á þorskveiðunum. Var hér um þýðingarmikið atriði að ræða, með því að það kom brátt í ljós, að hún tók langt fram þeim beitutegundum, sem not- aðar höfðu verið til þess tíma. Fór það brátt rnjög í vöxt, að síldin væri notuð í þessum til- gangi og nú um nokkra tugi ára hefir sildin verið notuð mjög mikið til beitu og má svo heita, að vart þekkist nú orðið beita. Sé síldinni ekki ast unnt að koma við, þar eð hún veiðist aðallega á þeim tíma árs, þegar hennar er minnst þörf til beitu — er hún fryst og varðveitist þannig sem ný væri, þar til þarf að nota hana. Frá því Norðmenn fyrst hófu síldveiðar hér við land, söltuðu þeir aflan og fluttu þannig út. Islendingar tóku þessa verkun- araðferð ekki upp, fyrr en all- miklu seinna. Fram til ársins 1911 voru aðeins tvær verkun- araðferðir viðhafðar við síldina, þ. e. frysting til beitu og sölt- un. Hlaut þetta að setja nokk- uð þröngar skorður við því, hversu afla mætti mikið, en kom þó tæplega að sök lengi framan af, þar eð aflamagnið takmarkaðist af öðrum ástæð- um, svo sem smátækum veið- arfærum. Með komu herpinót- arinnar hlaut þetta þó að fá þýðingu, því eftir því, sem mönnum lærðist betur að nota þetta stórvirka veiðarfæri og fleiri færðu sér ])að í nyt, jókst beitt nýrri — en því er sjaldn- Vinna við línu. Línuveiði er nú stunduð af flestum bátum á þorskveiðunum. síðustu aldamót. Hélzt svo allt önnur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.