Vísir - 17.06.1944, Page 133
VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ ~ "133
Hér hefir nú verið minnzt á
stofnun, fyrirfcomulag, tilgang
og markmið allra framhalds-
skóla, sem kunnugt er um að
starfandi sé á landinu, bæði rik-
isskóla og einkaskóla, sem
styrktir eru af ríkissjóði. Eru
þeir samtals 85, en nemendur
þeirra að minnsta kosti á 6. þús-
und. —
Bókasöfn og lestrarfélög.
Milli 20 og 40 bókasöfn og
lesstofur njóta nú styrks beint
úr ríkissjóði, en imi 200 lestrar-
félög úr styrktax*sjóði lestrar-
félaga. Sá sjóður var stofnaður
með lögum frá 1937, en styrkir
veittir úr honum fyrsta sinni
1939 og síðan árlega. Sérhver
þegn þjóðfélagsins getur nú átt
aðgang að bókasafni, sem styrkt
er af almannafé, livort sem hann
býr í sveit, sjávarþorpi eða
kaupstað. Enda er nú svo komið,
að einungis sárfáir hreppar hafa
ekki not almennra bókasafna.
m. LOKAORÐ.
Samanburður.
í þessu framanskráða og ó-
fullkomna yfirlitságripi um ís-
lenzka skóla og fræðslumál hef-
ir 19. öldinni ásamt þvi, sem af
er hinni 20., verið skipt í tvö ná-
lega jafnstór tímabil. Nær ann-
að frá 1800—1874, en hitt frá
1874—1944. Á seinna timabilinu
átti þjóðin við stjórnmálalegt
frelsi að búa, sem hún hafði ekki
fengið á hinu fyrra. En sá mun-
ur hefir áreiðanl. orkað miklu,
því að á engu sjötiu ára tímabili
öðru hafa jafn stórkostlegar
breytingar og risavaxnar fram-
farir í ytri efnum átt sér stað.
Að vísu kemur þama fleira til
greina. Þjóðin hefir búið að sán-
ingu, draumum og vonspám,
hugsjónum og baráttu Fjölnis-
manna, Jóns Sigurðssonar og
góðskálda annarra ágætismanna
frá fyrra timabilinu. Hún upp-
sker af sáningu þeirra, þegar
hún fær stjórnarskrána 1874 og
hefir verið að því alltaf siðan.
Hún sér sumar hugsjónir þeirra
og vonspár rætast. Og síðustu
áratugirnir hafa eigi slður orðið
miklir breytinga- og vaxtartim-
ar á vettvangi skólamálá en á
öðrum sviðum.
Ef tekin eru nokkur áberandi
atriði skólamálanna, eins og þau
voru 1874 og borin saman við
það, sem nú er, þá litur sá sam-
anburður þannig út:
Árið 1874 eru 5 barnaskólar
starfandi á landinu, en nú um
230; þá voru 2 framhaldsskólar
starfandi, nú 85 framhaldsskól-
ar og háskólinn; þá munu hafá
verið 10—13 bókasöfn og lestr-
arfélög, en nú yfir 230; þá munu
liafa verið gefin út 4 eða 5 smá-
blöð, en nú milli 50 og 60 blöð
og tímarit.
Þetta eru næstum ótrúlega
miklar breytingar á ekki lengri
tíma. En engin fullnaðar dóms-
úrskurður er þetta um mennt-
unarástand fyrr og nú. Það er
margt fundið að því enn, bæði
réttilega og ranglega. Og margt
vantar enn. Það vantar skóla-
hús. Það skortir mjög á að gerl
sé eins vel til kennara og vera
ber. Það þarf að samræma skól-
ana og endurskoða námsefni
þeirra. Það þarf að auka verk-
lega kennslu og endurbæta ým-
islegt fleira.
Allt þetta er nú einmitt til
gaumgæfilegrar áthugunar hjá
milliþinganefnd í skólamálum,
sem nú situr á rökstólum og
ekkert mun til þess spara, að
árangur starfs hennar verði sem
beztur, enda varðar það alþjóð
mikillega. En Alþingi og rikis-
stjórn verða að gæta þess, að
hún hafi nægilegan vinnufrið og
tima til starfa. Og í öðru lagi
verða allir landsmenn að vera á
verði um það, að engu góðu og
nýtilegu í tillögum nefndarinn-
ar verði varpað á glæ, þegar þær
koma.
Hvert stefnir?
En það, sem mér virðist þó
skipta mestu af öllu er það, að
við gerum okkur sem gleggsta
gi-ein fyrir þvi á þessmn merki-
legu tímamótum, hvert menn-
ing okkar stefnir og hvaða götu
við viljum ganga.
Hvers konar menn viljum við
að vaxi upp í þessu landi?
Við getum ráðið rniklu um
það. Almenningsálitið er lofts-
lagið, sem barnsálin vex upp i
og lifir i á fullorðinsárum, og
það loftslag getur orðið óhreint
og eitrað eða heilnæmt og
hreint. Við getum gert þetta
loftslag, sem við lifum í og höf-
um öll saman skapað, hreinna
og heilnæmara en það er nú.
Fáir menn, ein stétt getur
trauðla gert það, en ef öll þjóð-
in vill það einhuga, þá getur
hún gert það á nokkrum áratug-
um, gjörbreytt því, ef hún vill.
Og hver af okkur vill ekki, að
íslenzka þjóðin verði sann-
göfug þjóð, þvi að
„ið bezta, sem á grundu
hverri grær
er göfug þjóð með andans
fjársjóð nógan“.
Heima eða heiman
I búrið
I nestið
Bara hringja, svo kemur það.
Silli & Valdi
Aðalstræti 10 — Laugavegi 43 — Vesturgötu 29
Laugavegi 82 — Víðimel 35 — Langholtsvegi 49
34