Skírnir - 01.01.1873, Blaðsíða 42
42
ENGLAND.
upp. Ekki batnaSi þeim heldur i skapi þegar Englendingar og
Portúgalsmenn kusu Thiers til aS gera um landaþrætumál þeirra
í Afriku.
Lesendur Skírnis munu fara nærri um, aS margt sje ýkt og
ofhermt í þessum ámælisdómi um Englendinga. Um afskiptaleysið
af viSskiptamálum annara ríkja má margt segja; þess eru nóg
dæmi í sögunni, aS hlutsemin hefur heldur orSiS til þess aS auka
vandræSi en stöSva þau. Vígagörpunum þykir þaS lítilmannlegt
og kalla þaS bleySi og öllum illum nöfnum, aS sneiSa hjá
vopnaviSskiptum ef sæmd liggur viS, er þeir kalla svo; en flest-
um þykir þeim þó nóg um, er þeir líta á vegsummerkin, þar
sem morSengillinn hefur fariS yfir, og mundu þá fegnir kjósa
aS sverSin hefSi aldrei veriS dregin úr sliSrum, en ágreinings-
efniS hefSi veriS jafnaS á friSsamlegri málstefnu. Og þar hafa
Englendingar gefiS öSru þjóSum fagurt dæmi til eptirbreytni, er
þeir lögSu þrætumál sín viS Vesturheimsmenn í gerS og kusu
heldur aS láta á sig gauga bæSi þau mál en stofna til vandræSa.
AS vísu áttu þeir vondan málstaS í öSru þeirra (Alabamamálinu),
en slíkt hefur öSrum þjóSum sjaldnast þótt gild hvöt til aS láta
undan og skirrast viS ófriSi. Og svo mjög sem orS er gjört á
vansmíSum á landvörnum Englendinga og herskipun, vita þó allir
aS jafnfríSan flota á engin þjóS og þeir, og aS þeir eru nú tekn-
ir til af fullu kappi aS sníSa burtu annmarkana á herskipun
sinni. Öllum er og kunnugt, aS þeir eiga ((gull húsum fullum”,
sem margfaldast ár frá ári. Af þessu öllu má ráSa, aS England
muni ekki eiga minna undir sjer en hvert hinna stórveldanna,
þegar öllu er á botninn hvolft, og aS hvert þeirra eitt saman
mundi komast aS fullkeyptu, ef í illdeilum lenti meS þeim.
AS sama skapi og Englendingar hafa eins og dregizt meir
og meir út úr samvinnunni viS stórveldin á meginlandinu í af-
skiptum af allsherjarmálum norSurálfunnar, hafa þeir aptur snúizt
meS allmikilli atorku og rögg viS innlendum málum og haldiS
hvatlega áfram frelsisleiSina, en þó meS stillingu og gætni, svo
sem þeim er lagiS. Á þeirri leiS hefur Gladstone nú í 4 ár
haft forustuna, og fengiS allmiklu áorkaS. Merkustu rjettarbætur