Skírnir - 01.01.1873, Blaðsíða 148
148
NOREGUR.
lagi, ef reynslan sýni, a<5 þingið geti engQ afkastað sökum tíma-
leysis. Hitt máliS, um þingsetu ráSherranna, kveðst konungur
þurfa aS íhuga vandlega mjög, og mundi hann þá koma með
frumvarp um breytingu á stjórnlögunum í þá átt, er þingiB fór
fram á, er sjer virtist tími til kominn. þótti þingmönnum svar
þetta svo stirt og einræningslegt, að ekki mætti minna í móti
koma en ítrekun á ótrúar-atkvæBinu frá því í fyrra, og var þaB
samþykkt meB miklum atkvæBamun, eptir tillögu Sverdrups.
J>ykir nú mega eiga von á snarpri atgöngu af hendi sveit-
unga hans, og er þaB ekki óliklegt, er stjórnin berst slík
ójafnaBarráB fyrir, aö traBka ár eptir ár lögheimiluBum ráSum
fulltrúa þjóBarinnar. þingseta ráBherra er víBast talin svo
sjálfsögB, a8 þaB má kalla fádæma hneyxli, a8 jafn-stjórnfrjálst
land og Noregur skuli ekki hafa fengiB henni komiS í lög sín
enn, og er ekki líklegt, a8 stjórninni haldist til lengdar uppi
þvergirBingur hennar í því máli. Sá flokkurinn, er heldur fram
ríki þjóSarinnar til móts viB konungsvaldiB (Sverdrup og hans
liBar), eflist stórum ár frá ári, og er þess engin von, a8 hann
muni nokkurntíma láta undan síga fyrir „konungsmönnum”; mætti
þá svo fara, a8 þeir vildu fegnir hafa látiB uppi leikinn meBan
timi var til,
I andvígisflokki stjórnarinnar, en í liBi Sverdrups eru lika
Grundtvigs-sinnar og liin yngri kynslóB Skandinafa.
Flokkur GrundtvigsliBa er orBinn allfjölmennur í Noregi, og hafa
þeir komiB þar á fót lýBháskólum, sem í Danmörku. Fyrsti skól-
inn var reistur 1864 um veturinn , og heitir í Sögutúni, skammt
frá Hamri. Ilann er nú orBinu allblómlegur. Sí8an hafa hætzt
viB ellefu aBrir ví8svegar um land. í fyrra vor áttu forstöBu-
menn frá lýBháskólum á ölluin NorBurlöndum fund meB sjer í
Kristjaníu, og ræddu þar um fyrirkomulag slíkra stofnana og
nytsemi þeirra. Er mikil von a8 viB þaB glæBist áhugi almenn-
ings á svo þarflegum fyrirtækjum. — Fyrir hinni nýju .kynslóB
Skandínafa má helzt telja Björnstjerne Björnson til forgöngu.
J>eir eru mjög ólíkir hinum eldri Skandinöfum (Ploug og hans
liBum) og eiga engri blíBu a8 fagna af þeirra hendi. þeir eru
móthverfir ráBum þeirra Plougs, a8 setja eina stjórn og eitt