Skírnir - 01.01.1873, Page 7
ALMENN TÍÐINDI.
7
sögunni, erþá varkomiSmálarekstrinum. Fimtándadag júnímánaSar
settust gerðarmenn aS dómi í Genf, eins og ráS var fyrir gert;
var stjórnin í Lundúnum þá í verstu kreppu og meS öndina í
hálsinum, því aS Yesturheimsmenn höfSu tekiS þvert fyrir, aS þeir
mundu láta kröfur sínar um bætur fyrir ítóbeinan” skaSa af rán-
skipa-útgerS Englendinga falla niSur, en þaS var ógrynni fjár, tvö-
falt meira en útlát Frakka til þjóSverja eptir Sedan-stríSiS, eSa
fram yfir þaS; svo höfSu Englendingar óskaS, aS dóminum yrSi
frestaS um 8 mánuSi, en ólíklegt þótti aS þaS mundi fást. En
þaS rættist betur úr fyrir þeim , en viS var búizt, því aS fám
dögum síBar (26. s. m.) lagBi gerSardómurinn þann úrskurS á,
aS kröfur Bandamanna yrSu ekki teknar til greina, og synjaSi
samstundis um frestun á dóminum. Nú var öllum vandræSum lok-
iS. MánuSi síSar var dómur upp kveSinn, og skyldu Englending-
ar gjalda Bandamönnum nálægt 30 milljónum ríkisdala í skaSabætur
fyrir spell þau, er þrjú víkingskipin: Alabama (er þrætan var
kennd viB), Florida og Shenandoha höfBu unniS. Um hinar rán-
skúturnar varS ekki sannaS, aS þær hefSu veriS gerBar út úr
enskum höfnum. þessum málalokum undu Bandamenn vel, eins
og nærri má geta, og Englendingar urBu fegnir aB losast viS
þrasiS ogkomasthjá ófriBi, þótt þeim þætti súrt í broti, aS verSa
aS bera sinn hlut lægra en frændur þeirra hinir ungu fyrir vest-
an hafiS. En þeir áttu eptir aS fá enn lakari útreiS í viSskipt-
um viS Bandamenn. þaS var í landaþrætumáli því, er kennt var
viS eyna San Juan, og nefndist þessvegna San-Juan-máliS.
Eins og kunnugt er, eiga Englendingar geysi-miklar iandeignir í
Vesturheimi, og liggja saman landamerki þeirra og Bandamanna
um þvera álfuna; Englendingar eiga svo aS segja allt landiS fyrir
norðan Bandamenn. Fyrir norSan Kaliforníu, meSfram Kyrra-
hafi og austir undir Hamrafjöll (Rocky Mountains) heitir Wa-
shiugton og Oregon, og eiga Bandamenn bæBi þau hjeruS. þaS
er mikiB land og frítt, og liggur jafnsunnarlega og Frakkland, og
mun vera ámóta stórt. Fyrir 30 árum síSan hjet þaS einu nafni
Oregon, og köiluSu Englendingar þá landiS sína eign. En Banda-
menn sögSust þurfa aS eiga þaS, og varS svo aS vera sem þeim
HkaSi; mun Englendingum ekki hafa þótt tilvinnandi, aS hætta