Skírnir - 01.01.1873, Blaðsíða 127
PORTÚGAL.
127
P o r t ú g a I.
Ekki var trútt, um aS stjórninni í Lissabon yrSi nokkuS órótt
vi8 tíbindin á Spáni í vetur, er þar rann upp þjóðríki. þótti
mega búast viS, aS öldu þá, er þar var risin, kynni aS bera
vestur yfir fitina (Portúgal), enda er og haft fyrir satt, aS eigi
allfáir af þegnum LoSvíks konungs sjeu svo skapi farnir, aS þeir
mundu fagna slíkum tíSindum. Ekki urSu þó nein uppþot eSa
ókyrrSir, aS þvi undanskildu, aS nokkuS kvik kom á stúdenta
viS háskólann í Coimbra; en þaS var ekki aS neinu marki. þaS
er aSgætandi, aS þótt Portúgalsmenn sjeu frjálshugaSir, eru þeir
aS því skapi þjóShugaSir; er því ekki nærri því komandi viS þá,
aS ganga í samband viS Spán, svo sem Spánverjar margir eru
mjög fýsandi þá (gjöra úr báSum löndunum eitt ríki, hiS iberska
þjóSveldi). þeim er ekki úr minni liSin sambúSin viS Spán forS-
um daga (1580 -1640). Fyrir því brugSust andvígismenn stjórn-
arinnar á þinginu í Lissabon svo viS tíSindunum frá Madrid,
aS þeir hjetu benni alúSarfylgi og fulltingi til varnar sjálfsfo’ræSi
landsins gegn grönnunum fyrir austan. — Portúgalsmenn hafn
lengi átt í basli meS fjárhag sinn, og safnaS skuldum á hverju
ári. ÁriS sem leiS tókst þeim aS ríSa af hallann aS miklu leyti;
hefur ráSaneytinu, er nú hefur völd, tekizt aS hagtæra betur
tekjunum, og koma á sparnaSi í ýmsum greinum; þar á meSal
fært niSur lífeyri konungs og hirSarinnar. Ekki varS neitt af
endurskoSun og lagfæring á stjórnarlögunum, svo sem í ráSi var
í fyrra; þinginu var slitiS áSur því yrSi fram komiS. — þaS
þótti merkilegur atburSur, aS konungur tók í sumar í fyrsta
skipti prótestantiskan mann í jafningjatölu (jafningjar eru aSals-
menn og skipa efri deild þingsins). — í sumar er var komst upp
í Lissabon samsæri allmikiS. Voru viS þaS riSnir margir ttgnir
menn, úr mótgangsflokki konungs, en sannaS varS þaS ekki upp
á neinn nema greifann af Angeja. þaS er sami maSurinn og áS-
ur nefndist Peniche greifi, og sekur varS um landráS fyrir fám árum