Skírnir - 01.01.1873, Blaðsíða 26
26
ALMBNN TÍÐINDI.
far'18 a8 dæmi Lúters og kvongazt. þá hefar enn eitt fJelagiP
myndazt í Sviss. f>að kallar sig ((samkundu frjálslyndra páfatrúar
manna’’, liafnar óskeikunarkenningunni, og befur sett sjer fyrir að
rýma burt misferlum og lýtum binnar kaþólsku kirkju. Á svipuð-
um umbrotum bryddir víðar um hinn kaþólska heim, en hvert úr
þeim verður meira en tilferðin tóm, mun timinn sýna. — Hin
kaþólska kirkja hefur jafnan haft það orð á sjer, að hún vildi
ráða meiru um ríkisstjórn, en vera ber cða samrýmt verður við
andlegt eSli hennar. f f. á. Skírni er þess getiS, aS eitt af
stórvirkjum þeim, er hinn mesti stjórnskörungur aldar vorrar,
Bismarck, hefur tekiS sjer fyrir hendur, er aS hnekkja yíirgangi
hennar. Fyrsta höggiS hans voru hin nýju skólalög’J er hann hafSi
fram á þingi Prússa í fyrra vetur eptir langa hríS og harSa.
MeS þeim voru klerkum (kaþólskum og lúterskum) bönnuS öll
afskipti og eptirlit á úppfræSing ungra manna, en umsjón skóla
í staS þess falin mönnum, er ríkisstjórnin velur til þess. þetta
var því tilfinnanlegur áverki, en bráSum reiS annaS höggiS á
eptir og ekki minna, þaS voru nýmæli, þar sem Kristmunkum
er bannaS aS flytja messu í nokkurri kirkju á þýzkalandi, klaustr-
um þeirra lokaS, og sjálfir þeir reknir úr landi. J>essi lög sara-
þykkti ríkisþing þjóSverja 19. dag júnimánaSar. SíSan var þeim
beitt vægSarlaust um allt þýzkaland. Fóru Kristmunkar sumir
vestur á Holland, aSrir suSur í Austurríki. þegar þessi ósköp
spurSust suSur í Róm, stefndí stórmeistari Kristsmunkareglunnar,
Bekx, til fundar þar meS þeim fjelagsbræSrum, til aS ráSgast um,
hvaS til bragSs skyldi taka. VarS sú niSurstaSan, aS stofna
skyldi leikmannafjelag, er hefSi á hendi sama ætlunarverk og
Kristsmunkar, en hjeti öSru nafni. þessum piltum skyldi svo
hleypt inn á akurinn þýzka í staS Kristsmunka. En Bismarck
háfSi sjeS viS þeim lekanum og sett undir hann í lögunum, svo
bragSiS varS ónýtt. Utúr óskeikunarkenningunni hefur líka lent
í deilum meS stjórninni á þýzkalandi (og víSar) og yfirhirSum
páfahjarSarinnar. Yfir hvern þann kaþólskan mann, er ekki vill
játast undir hina nýju trúargrein páfa, láta biskupar þegar dynja
særingar og bannfærir.gar, og reka klerka úr embættum, ef þeir
þýSast hana ekki. þetta hefur nú stjórnin aS vísu ekki vald til