Skírnir - 01.12.1912, Blaðsíða 60
348 Nokkrar athuganir nm islenzkar hókmentir á 12. og 13. öld.
rót sína að rekja til vináttu hans og Runólfs, er lifði til
1186, og gat því frætt dótturson sinn, Ketil Hermundar-
son, um háttu hans öllum mönnum fremur *)? Frá hon-
um gæti og verið runnin frásögnin um vitran prestsins
fyrir norðan (Arna Bjarnarsonar), sama daginn og Þorlák-
ur biskup Runólfsson andaðist 1133 (Hungurvaka 12. kap.).
Af þessu, sem hér hefir talið verið, verð eg að halda
því fram, að ekki sé annar líklegri til ’að vera höfundur
Hungurvöku en Ketill ábóti Hermundarson og þá jafn-
framt höfundur Pálssögu, eins og getið hefir verið, enda eng-
inn vafi á, að þessar tvær sögur séu ritaðar af sama manni,
og að líkindum einnig Þorlákssaga hin eldri, því að lík-
urnar eru mestar fyrir því, að allarþess-
ar þrjár sögur — Hungurvaka, Þorláks-
saga hin eldri og Pálssaga — séu eftir einn
og sama mann. Og sá maður hygg eg að
sé enginn annar en Ketill Herinundarson
ábóti á Helgafelli (f 1220).
Að lokum vil eg geta þess, þótt það komi ekki bein-
linis þessu efni við, að eg hygg, að Ketill ábóti sé að
einhverju leyti riðinn við tvær íslendingasögur að minsta
kosti: G-unnlaugssögu ormstungu og Lax-
dælu. Um Gunnlaugssögu er það að segja., eins og fleiri
Islendingasögur, að sagnirnar munu hafa haldið sér lengst
og bezt í ætt söguhetjanna, og það munu oft eða oftast hafa
verið niðjar þeirra eða skyldmenni, er fyrst hafa fest á band
afrek feðra sinna. Af Gilsbekkingum er engirin iíklegri
en Ketill Hermundarson til að hafa fjallað um Gunnlaugs-
sögu, og þótt Ara fróða sé eignuð einhver hlutdeild í
henni eða sé jafnvel talinn höfundur hennar (sbr. yfirskrift
') Vitanlega getur sú fræðsla um biskupstíð Klængs i Skálholti
eins Btafað frá Grissuri Hallssyni. En það er svo óvenjumikill hlýleiki í
nmmælum söguritarans um Klæng biskup, að ætla mætti, að hann hafi
að minsta kosti verið ástvinur og velgerðamaður nánustu skyldmenna
hans. Og það getur einmitt átt mætavel heima um ættfeður Ketils Her-
mundarsonar, þau hjón Ketil biskup og Gróu og Runólf son þeirra, eins
og bent hefir verið á.