Skírnir - 01.12.1912, Qupperneq 61
Nokkrar athuganir um islenzkar bókmentir á 12. og 13. öld. 349
sögunnar) þá hefir dr. B. M. Olsen sýnt fram á, að sagan
muni alls ekki verk Ara‘). En eins og sjá má, að höf.
Hungurvöku hefir þekt Islendingabók, eins má ætla, að
honum hafi verið kunnugt um h a f i Ari eitthvað um
Gunnlaug ormstungu ritað. Og eigi Ari einhvern þátt í
Laxdælu, sem sumir hafa haldið fram, þá er ástæða til að
ætla, að Ketill hafi kynzt ritum Ara verulega eftir að hann
varð ábóti á Helgafelli, því að þar eða í grendinni mun
Ari hafa dvalið allan siðari hluta æfi sinnar. Án þess að
fara langt út í þessi efni skal þess getið, að Laxdæla virð-
ist, að minsta kosti á einum stað, bera það með sér, að
hún sé rituð eftir að klaustur var stofnað að Helgafelli
af manni, sem hafði mætur á þeim stað, auk þess sem
víða má sjá af sögunni, að höfundur hennar er lærður
maður (klerkur). En það sem gæti bent á, að einhver
Gilsbekkingur, og þá naumast nokkur annar en Ketill
Hermundarson, sé aðalhöfundur Laxdælu, er, að í lok
hinnar eiginlegu Laxdælasögu er ætt Gilsbekkinga rakin
niður frá Herdísi Bolladóttur, sonardóttur Guðrúnar Osvífs-
dóttur, og það miklu rækilegar en nokkursstaðar annars-
staðar, því að föðurætt Hermundar Koðranssonar og ætt-
erni konu hans Álfeiðar Runólfsdóttur, móður Ketils ábóta,
er hvergi kunnugt nema þaðan. Og eftirtektarvert er
það, að ættin nær lengst niður til sona Hermundar, sem
allir eru nafngreindir, þar á meðal einn Styrmir, sem ekki
er kunnur annarsstaðar frá og líklega hefir andazt ungur.
Hér hefir þvi nákunnugur maður um fjallað. Og hver
mundi þá líklegri til þess en einmitt Ketill ábóti Her-
mundarson? Það lítur alls ekki út fyrir, að ættartalan sé
síðari viðbót eða yngri en sagan, enda mundi hún þá færð
lengra niður. En nú ber flestum saman um, að sagan sé
l) Sbr. B. M. Ólsen: Om Gunnlangssaga Ormstungn. En kritisk
Undersögelse, prentað í ritum danska vísindafélagsins 7. K. Afd. II, 1
Köbenhavn 1911. Sjá um þetta tilvitnaða atriði sérprentunina bls. 11—
13. Dr. B. M. Ólsen leiðir i riti þessu rök að þvi, að böf. Gunnlaugs-
sögu hafi þekt og notað Laxdælu. Ættarmótið á svo mörgu í Grunn-
laugssögu og Laxdælu er og auðsætt.