Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1912, Side 66

Skírnir - 01.12.1912, Side 66
354 Nokkrar athnganir um islenzkar bókmentir á 12. og 18. öld. í 18. kap. eldri sögunnar (Bisks. I, 110) segir svo: »Þá var í Skálholti Gizurr Hallsson, mik- i 11 höfðingi, vitr ok góðgjarn«. í yngri sög- unni 28. kap. (Bisks. I, 295) er þessu breytt þannig: »Þ á var kominn at vist í Skálaholt Gizurr Hallsson, er bæði var vitr ok góðgjarn*. Auk þess sem hér er miklu nánara ákveðið en í eldri' sögunni, að Grissur hafi verið fiuttur vistferlum í Skál- holt, þá er hitt eftirtektavert, að hér er slept einkunnar- orðunum, »mikill höfðingi*, alveg eins og um Þorva,ld Gissurar8on. Hver annar en einhver allra nákomnasti ætt- ingi Gissurar mundi hafa kipt því burtu úr eldri sögunni að kalla Gissur »mikinn höfðingja«, jafnmikinn og alkunn- an ágætismann? Það kemur ekki til nokkurra mála. En það er hins vegar mjög skiljanlegt, að sonur hans haíi einmitt fyrir lítillætis eða hæversku sakir slept þess- um einkunnarorðum um föður sinn, en látið sér að eins nægja að halda hinum hæverskari ummælum: »vitr ok góðgjarn*. Og af sömu ástæðum verður einnig skiljanlegt, að hann sleppir einnig alveg sams konar ummælum um Þorvald bróður sinn, en telur honum í þess stað annað til gildis (sbr. áður). Hér séet, að það er einmitt af ásettu ráði, að höfundurinn gerir þeira feðgum báðum jafnt undir höfði. Af því að hann heíir slept þessu um föður sinn vill hann ekki gera bróður sínum hærra undir höfði, rétt á eftir, en bætir honum þá úrfelling upp með öðrum sæmi- legum ummælum, sem ekki standa í eldri sögunni, því að þar er Þorvaldur að eins nefndur mikill höfðingi. Þetta virðist mér hérum bil ótvírætt sýna, að höfundur sögunnar sé einmitt sonur Gissurar og bróðir Þorvalds.* 1) Og er þá ekki eftir nema síðasta ástæðan, er jafnvel sannar það einna ljósast, að einmitt Hallur ábóti Gissurarson sé höf. sögunnar. ‘) G-eta má þess ennfremur, að frásagan um draum Gissurar Halls- sonar eftir lát Þorláks biskups er nákvæmari og orðfleiri i yngri sög- nnni en binni eldri. I yngri sögunni (Bisks. I, 302) er t. d. sagt um Gissur, að hann þóttist út ganga o. s. frv., en þetta vantar meðal annars i bina eldri (Bisks. I, 114).

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.