Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 67

Skírnir - 01.12.1912, Page 67
Nokkrar athuganir um islenzkar bókmeutir 4 12. og 13. öld. 355 í jarteinabók Þorláks biskups þeirri er Páll biskup lét lesa upp á alþingi 1199 og rituð mun vera einmitt árið 1200 (Bisks. I, 333—356) er 34. jarteinin um Hall Gissurarson, sem kallaður er »goþr prestr oc göfigr* (Bisks. I, 347—348) og þess getið, að hann hafi verið orðinn mál- laus af kverkameini, en fengið fulla bót þessa meins síns, er hann kom í Skálholt og baðst fyrir að helgum dómi Þorláks biskups, og sagði hann sjáifur jartein þessa Páli biskupi, eftir því sem þar segir. Næst á undan jartein þessari er um fall nautahellis í Odda og næst á eftir um fund gullsylgju, er týndist í Gröf skamt frá Skálholti. í yngri sögunni er einmitt þessari jartein um lækning á kverkameini Halls Giss- urarsonar gersamlega slept. Hennar er að engu getið, en hins vegar aðrar næstu jarteinir, bæði á undan og á eftir h en n i í jarteinabókinni, nákvæmlega taldar,1) og t. d. nákvæm lega skýrt frá týndu gullsylgjunni í Gröf, er verið hafi 7 vetrum fyrir andlát Þorláks bisk- ups, og að kona sú, er henni týndi, hafi Ingunn heitið. Það er því auðvitað hvorki af tilviljun eða gleymsku, held- ur beinlinis af ásettu ráði, að kipt er burtu jarteininni um Hall. Það er einmitt af því, að hér átti söguhöf. sjá 1 fur hlut að máli, hefir ekki kunnað við að skrásetja þessa jartein um sjálfan sig, eða láta nafns síns getið á þennan hátt, en ekki viljað taka hana upp án þess, úr því að hún var svo greini- lega við nafn hans bundin í jarteinabókinni. Engum öðr- um en Halli Gissurarsyni, sjálfum söguritaranum og sögu- höfundinum, mundi hafa komið til hugar að sleppa ein- mitt þessari jartein, en taka aðrar ómerkari á undan og ') Þótt höf. eldri sögunnar nefni ekki jarteinina um Hall er ekkert undarlegt, því að hann sleppir svo afarmiklu úr elztu jarteinahókinni og virðist hafa hagnýtt hana harla lítt. Jarteinirnar í yngri sögunni eru miklu fyllri og skipulegri en i eldri sögunni og i meira samræmi við elztu jarteinabókina, er höf. hefur auðsjáanlega haft fyrir sér, auk fleiri frúsagna um jarteinir Þorláks biskups. 23*

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.