Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1912, Page 73

Skírnir - 01.12.1912, Page 73
Arnarhreiðrið. 361' anna eru, þangað til gott stigi verður fyrir; eg hafði far- ið langt vestur á við í fjallinu, er eg var að skoða berg- ið, og þyrftu liklega ekki að hafa orðið á leið minni svo mjóar og brattar hillur að mér þætti háskasamlegt að fara eftir þeim. En þegar eg var kominn eitthvað 1300 fet upp, varð fyrir. mér þykkra blágrýtislag en þau höfðu ver- ið flest eða öll áður, og leitaði eg lengi fyrir mér svo að mér virtist ókleift; fór eg þá fram hjá þeim stað þar sem eg komst ofan þetta klettabelti á niðurleið, og mun þar mega komast upp fremur en þar sem eg fór. En eg hafði nokkrum árum áður þózt mjög heima í milli á likum stað i öðru fjalli, og því hætti eg ekki síður til þarna. Það er ekki margra þumlunga munur um handfestu eða fótfestu, sem gerir hvort fært er að klifrast, eða ekki. Loksins komst eg upp hamrana þessa suðaustan á fjallinu, og er þó fjallið þar niðurundan brattara en annarstaðar, með öllu ókleift, og jafnvel á sumrurn er þar stundum grjótflug; og svo var þenna dag sem eg gekk þarna upp; hrundu eg veit ekki hvað mörg hundruð pund af grjóti þar niður yfir sem eg hafði lengi verið að leita að skeljum daginn áður; þarf víst að vera Færeyingur eða Vestmanneyingur til að þykja þarna ekki í meira lagi óvistlegt. Eg komst upp á þann hátt að eg stakk hægri handlegg inn í glufu í berginu og gat með því að ýta við með lófa og olnboga lyft, mér það upp, að eg náði góðu haldi með vinstri hendi. En það sá eg, að talsvert meiri klettamann en eg er, þarf til þess að komast ofan aftur í þessum stað. Þarna fyrir ofan varð aftur greiðara uppgöngu, og hitti eg fyrir eitt af þessum lögum, sem eg veit að menn munu afsaka að mér þykja svo falleg; þau líkjast annars talsvert steinsteypu, geta verið afarhörð og eru jöklamyndanir fornar mjög; enginn hefir áttað sig á þessari bergmyndun fyr en eg gerði það, og eiga þau lög eftir að verða miklu frægri en þau eru nú. Ofar var aftur blágrýti, og efst í fjallinu þykt blágrýtislag, sem verður af eins og sérstakur stöpull syðst á fjallinu, en er þó raunar mjó spöng eða haft, sem tengir hann við aðalfjallið. Upp á þenna stöpul varð eg að kom-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.