Skírnir - 01.12.1912, Blaðsíða 75
Arnarhreiðrið.
363
og á turnþaki; var veður hið fegursta og skemtilegt um-
horfs, en þó spilti dálítið áhyggja af því, hvernig gengi
að komast ofan aftur, bæði niður frá hreiðrinu, og þó
ennþá fremur niður hamrabeltið, sem áður er getið um,
því að þar hafði mér sést yfir stað, sem eg gat farið nið-
>ur. Eg horfði yfir Breiðafjörð, yfir í ljósblá fjöllin hinum
megin fjarðar, en þó miklu meira yfir Snæfellsnesið, og
reyndi að átta mig betur á þessu landi, sem eg hafði
verið að rannsaka dálítið undanfarið. Gengur mér hvergi
•eins greiðlega að hugsa eins og á fjöllum uppi, sé annars
veðrið nógu gott, og hefir mér oft þótt skaði mikill hvað
langsótt er að komast upp á fjöllin, og að geta ekki átt
heima við fjall eða á fjalli.
Eg leit yfir á Stöðina, skemtilegt smáfjall, sem hefir
að eins hálfa hæð við Kirkjufell, eða varla það, og er
þar skeljalag í og fornar jöklamyndanir, eins og í Bú-
landshöfða; hefir þetta alt verið samfast áður, eins og þeir
vissu þegar Eggert og Bjarni, þó að ekki hafi landið rifn-
að sundur á þann hátt, sem þeir héldu ; og eru þó að vísu
afarfornar jarðskjálftasprungur þar í fjöllum; leir og steinar
undan jöklunum hefir pressast niður í þær sumar og harðnað
þar. Eg horfði upp í Helgrindur, fornt eldfjall, hálfhrun-
ið og sundurgrafið af jöklum og vatni. Eru þess háttar
eldfjöll frá isöldum á íslandi hundruðum saman, þó að
enginn hafi áttað sig á því fyr en eg, og er þar margt
fróðlegt, en mun einhvern tíma þykja undarlegt, að jarð-
fræðingar, sem hér hafa fengist við rannsóknir, skuli ekki
hafa þekt hvers konar fjöll þetta eru. Menn trúa því
aldrei á eftir, hvað erfitt er að færa út svið þekkingar-
innar, hvar sem er. Það er eins og togað sé í mann af
hinum, sem ekki sáu þó að þeir væru sjáandi, og eigi
einungis af þeim, heldur af öllum þeirra andlegu frænd-
um. Eyðast svo mestir kraftarnir í að slíta sig fram úr
ýmiskonar misskilnings- og heimskuflækjum, og beztu höf-
uð hafa moldu hulist, án þess að hafa unnið sannleikan-
um nema lítinn sigur hjá því sem orðið hefði getað, hefðu
þeir sem áttu ekki »ráðið svona heimskum her«.