Skírnir - 01.12.1912, Qupperneq 85
Um Völuspá.
373
M i S k a f 1 i n n, um nútímann, virðist ekki mengaSur kristnum
hugmindum (SlíSr, salirnir þrír, refsingar í undirheimum, Niðhöggr).
í þriðja kaflanum, spáuni um framtíðina, eru first for-
boðarnir firir ragnarökum. Virðist frásögnin um hina öldnu í Járn-
viði, um tungls tjúgara, fimbulveturinn, Eggþé og hanana, vera
rammheiöin. Aftur á móti er h'singin á óöldinni meðal mannanna
sem forboða firir heimsslitum í öllu verulegu samhljóða Guðspjöll-
unum, og af því að engin önnur heimildarrit vor enn Völuspá og
Snorri, sem auðsjáanlega fer eftir Vsp., geta um þessa óöld, virðist
vafalaust, að Vsp. hafi hjer farið eftir Guðspjöllunum, eða rjettara
sagt útlegging hinna kristnu trúboða á Guðspjöllunum.
Lísingin á hinum síðasta bardaga er í samræmi við það, sem
vjer annars vitum úr öðrum heimildum, alt þangað til Þórr er fa.ll-
inn, og hefur því ekki orðið firir krií'tnum áhrifum. Jeg legg enga
áherslu á það, að Vafþr.m. láta Víðar kjaftrífa orminn (sbr. Snorri,
söguna um skó Víðars), enn Vsp. lætur hann leggja úlfinn með
sverði í hjartastað. ASalatriðið er, að Víðarr hefnir föður síus. Á
sama hátt lætur Vsp. ÓÖin »f a 1 1 a« firir úlfinum, enn Vþrm.
lætur úlfinn gleipa Óðin. Frásögn Vafþrm. er eflaust eldri, enn
löguð af Vspárhöf. eftir fegurðartilfinningu hans.
Aftur á móti er vísan »Sól tér sortna« bersínilega bergmál af
Mattheusarguðspjalli og Opinberunarbókinni, eða rjettara sagt af
kenningum trúboðanna um heimsslitin samkvæmt ritningunni. Orð-
in Sól tór sortna koma alveg heim við sol niger factus
e s t hjá Matth., enn hins getur Vsp. ekki, að sólarúlfurinn gleipi
sólina, enn það er hin forna heiöna hugmina (Vafþrm. 47: áðr
hana fenrir'fari; Grímn. 40 Skoll heitir úlfr es
fylgir enu skírleita goði til varna viðar, en
annarr Hati — hann es Hróðvitnis sonr — sá
skal fyr heiða brúði himins). Ekki getur Vsp. heldur
um það, sem Vafþrm. 47 segir : Eina dóttur berr alfröð-
u 11, áðr hana fenrir fari, sú skal ríða, þá es regin
deyja, móður brautir mær, og ekki er heldur þessarar
dóttur sólarinnar getið í kaflanum um endurfæðing heimsins. Þar
er talað um sal, sólufegri, á Gimlói, enn sólin sjálf ann-
ars ekki nefnd á nafn. Vsp. er, að því er sólina snertir, í orð-
rjettri samhljóðan við Mattheus og Opinberunarbókina, enn í
þegjandi mótsögn við Vafþrm. og Grímnism., sem hafa geimt
hugmindir heiðinna manna um þetta atriði í endurfæðiugu heimsins.
Santskonar mótsögn við Vafþrm. kemur fram í frásögn Völuspár