Gefn - 01.01.1873, Síða 25
25
altítt í katólskum sið. og þá er það komið inn í rnálið eptir
kristni, og gefu>- það bendíngu um að kvæðið sé ort í kristni
og þess vegna einmitt á íslandi, en ekki á dögnm Sigurðar
hríngs, eins og Munch áleit. Kristin kona kemur fyrir í
Gróugaldri. í Völuspá eru líka nefndar »töflur«. sem er á
latínu »tabulae« (á íslendsku hafa menn sjálfsagt ætíð sagt
»töblur«), og orðlengjum vér þetta svo ekki meir, en minn-
um á orð J>órðar Möbiusar, er hann kveður að öllum þessum
»óekta« mönnum með fullum stöfum, þar hann segir hreint
út, að latínsk orð sem finnist í Völuspá og öðrum Eddu-
kviðum, sé þángað komin fyrir krapt kirkjunnar og klerk-
anna (í »íiber die altnordische Sprache« 1872 bls. 27); þar
með er beinlínis gefið, að lærðir (o: klerkvígðir) menn sé
þeir hinir einu, sem Eddukviðurnar verði eignaðar, og þessir
menn gátu engir aðrir verið en Íslendíngar, eins og vér opt
höfum tekið fram (sbr. bls. 10 hér að fráman).
ísland er aldrei nefnt í Eddukviðunum, né nokkur íslends-
kur staður, sem ekki er von, því þar var aldrei tækifæri til
þess. En sumstaðar merkist landvort allglögglega í gegnum
skáldablæjuna; köldum og heiðríkum anda slær stundum
fyrir, eða þá hita af brennandi eldslogum. í Brynhildarkviðu
II 8 stendur: »opt gengr húu innan ills um fyld ísa ok
jökla aptan hvern«: hér er ekki meiníngin, að hún (Bryn-
hildur) sé full af ísum og jöklum, því slik smekkleysa dettur
engum skáldlegum manni í hug, þó svo sé ætlað í enni
miklu útgáfu af Sæmundar-Eddu (II 215) og siðan þannig
skilið af öðrum; en hún gekk ísa og jökla o: um ófijóvar
eyðistöðvar; ýngri skáld segja, að ísinn bráðni um hjarta manns
(um harða og tilfinníngarlitla menn), en í fornum kveðskap
hef eg aldrei séð það; hér eru ísar og jöklar eða ófrjó ör-
æfi sett sem samsvarandi til ennar grimmlegu heiptar sem
Brynhildur var altekin af, og þessi hugmynd kemur optar
fyrir, raunar í öðru sambandi, eitis og við er að búast af
mönnum sem voru ís og jöklum vanir, en það voru einmitt
Íslendíngar, en ekki Norðmenn, hversu mjög sem frjósa kann