Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Síða 79
ÚTFÖR JÓNS SIGljRÐSSONAR.
79
var öll búin svörtum tjöldum, og sá varla annað í kórnum en
altarið og altaristöfiuna og gráturnar. Var það og tjaldað
svörtum dúkum og vatið blómsveigum. Prjcdikuuarstóllinn
og ljósahjálmarnir var og tjaldað, og sömuleiðis fram með
svölunum á loptinu. Öll var kirkjan prýdd ljósum.
Meðan fólkið var að komast inn í kirkjuna, var leikið
sorgarlag á organið, en er allir voru komnir til sætis, var haf-
inn söngur, er svo byrjar: »Beyg knje þín, fólk vors föður-
lands». Síðau flutti Hallgrímur dómkirkjuprestur Sveinsson
líkræðu. Síðan fluttu þeir Matthías Jochumsson og Pjetur
biskup Pjetursson ræður, og voru sungin kvæði í milli og við
úthafninguna, er öll hafði ort Matthías; var eitt þeirra sorgar-
söngur mjög fjölbreyttur, og stýrði laudshöfðingjafrú Olufa
Finsen honum sjálf. Síðan hjelt líkfylgdin í sömu röð til
kirkjugarðsins, en áður en kisturnar voru látnar niður í gröfina,
mælti Halldór yfiikennari Friðriksson fram kveðju fyrir hönd
ísfirðinga; en er kisturnar voru sígnar niður í gröfina, talaði
Hallgrímur dómkirkjuprestur Sveinsson nokkur orð, áður en
hann varp moldarrekunum á kisturnar; síðan sneri öll líkfylgd-
in heim aptur, og var það um kl. 3 e. m.
Gröfin var múruð upp úr höggnu grjóti, og vandlega um
hana búið; um kveldið var múruð hvelfing yfir hana, ogsleng-
urnar af bryggjunni settar yfir hana sem pílárar til bráða-
birgða.
Kisturnar voru úr eik og með eikarlit, en innan í þeim
voru sínkkistur. Þær voru allar þaktar blómsveigum og krönz-
um frá vinum þeirra erlendis, og voru nöfn gefandanna á
sumurn krönzunum. Á kistu Jóns var pálmaviðarkranz frá
stúdentum í Höfn, og lárviðarkranzar frá bókmenntaQelaginu og
þjóðvinafjelaginu; svo var og silfurkranz sá frá Islendingum í
Höfn, er getið er um í frjettunum í fyrra, og svo annar silf-
urkranz með hjartalöguðum skildi innan í frá »Norske Sam-
laget» í Noregi. Fylgdi þeim kranzi vinsamlegt brjef á ný-
norska tungu frá formönnum fjelagsins, er gáfu kranz þennan;
var hann gjörður af mikilli íþrótt. Á skjöldinn voru grafin
þessi orð:
Fraa meðlimer