Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Qupperneq 22
22
lendinga og þessat’ hugrayndir um nýtt skjaldarmerki og nýjan fána
runnu alveg saman. Fáninn átti að vera merki—skjaldarmerki —
landsins; sama mynd átti að vera í fánanum eins og í skjaldar-
merkinu eins og t. d. á sjer nú stað með konungsfána og skjaldar-
merki Noregs. Sigurður málari hefir málað tvo stóra pappaskildi
með þessu nýja skjaldarmerki, bláa með hvítum fálka, (nr. 5484 í
Þjóðmenningarsafninu) og hann hefir dregið upp fyrirmynd til að
sauma eftir fána fyrir hið nýstofnaða stúdentafélag i Reykjavík') og
eftir honum eða myndinni var saumað líkt skrúðgöngumerki fyrir
lærða skólann* 2 *). — Stúdentafjelagsmerkið var fyrst notað á Þing-
vallafundinum 1873. I skrifasafni Sigurðar málara, sem nú er geymt
í Þjóðmcnjasafninu, virðast vera fyrstu frumteikningar þessa fálka-
merkis, 3(—5) litlar og ófullkomnar á einu blaðinu, 1 stærri og all-
nákvæmlega dregin á öðru. Merkið er dregið sem hin fornu merki,
er getið er um í sumum sögum að menn hafi fest við spjótsköft sínB).
Það er á öllum myndunum dregið þannig, að fálkinn er á flugi og
snýr að stönginni (spjótinu) og snýr til hægri (skjaldmerkjafræðis-
lega) á þeirri hlið merkisins, sem dregin er upp á myndum þessum.
A hinni hliðinni snýr hann því til vinstri, ef hann snýr að stöng-
inni. Þetta á sér stað á skólamcrkinu og svo hefir það vitanlega
verið á öllum slíkum fálkamerkjum og fálkafánum. Pappaskildirn-
ir 2, sem áður var getið (nr. 5484 í Þjóðmenningarsafninu eru hvor
öðrum ólíkir að því, að á öðrum snýr fálkinn til hægri, en á hiu-
um til vinstri. Af þeim verður því ekki séð hvort Sigurður málari
hefir hugsað sér að fálkinn skyldi snúa til hægri eða vinstri í skjald-
armerkinu, en í þessu sambandi hefir það nokkra þýðingu að vita
það. Lauslegu frummyndirnar benda helzt á, að hann hafi hugsað
sér að fálkinn skyldi snúa til hægri. Á framhlið skólafánans snýr
fálkinn til hægri (eiginlega upp að þverstönginni). Ef nokkuð er
takandi mark á þessum fánamyndum og fána virðist það líklegast
að Sigurður hafi hugsað sér að fálkinn sneri til hægri á skjaldar-
merkinu4).
Hitt er fullvíst hversu fálkamyndin skyldi vera samkvæmt
hans hugmynd, því að allar eru þessar fálkamyndir eins að heita
*) Myndina átti séra Eiríkur Briem prófessor, en nú mun óvist hvar hún er
niður kominn. — Fáninn sjálfur er týndur.
2) Nú á Þj'ðmenningarsafninu, nr. 6175.
8) Yöls.s., Karlm.s., Þiðr.s, o. fl. — Sbr. Bjalmar Falk, Altnord. Waffen-
kunde § 25.
4) í skjaldarmerki Lofts rika eftir Sigurð, því er áður var um getið, snýr
fálkinn til vinstri, en er að öðru leyti likur þessum fánafálkum.