Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Qupperneq 65
65
6661. 20/6
6662. —
6663 22/8
6664. —
6665. —
6666. —
úr beini, 1. 12,2 sm., útlend að uppruua. Fundin í
jörðu í Reykjavík.
Upphlutur úr svörtu klæði, fóðraður með mógráum
>»shirtingi«, bryddur með rauðu flúneli; neðanvið er fest
rauðþryktu sirzi. Á bakinu eru rósaborðar úr fluéli
og fremst á boðöngum, undir millunum, sem verið hafa
6 hvoru megin, eru svartir fluélsborðar og silfurvírs-
borði fyrir aftan. Lengd um mittið 61 sm., hæð að
framan 14 sm., en á miðju baki 22 sm. Hlýrar nú
30,5 sm, en mikið auknir eða endurbadtir.
Upphlutur að öllu mjög likur nr. 6661, en bryddur með
rauðu fluéli og að framan með köflóttu silki, og með
»gullvírsborða« á. Viðfestingu vantar neðan af. L. um
mittið 61 sm, hæð að framan 11 snr, á miðbaki 21
sm.; hlýrar auknir, 1 29 sm., freraur mjóir, 3 sm.
Upphlutir þessir eru sennilega frá fyrri hluta síð-
ustu aldar. Af var lagt að bera upphlut, en nú er þessi
gamli búningur óðum að takast upp aftur meðal ungra
kvenna, notaður við pilsið í stað fellingapeysunnar, en
engin treyja er borin yflr, heldur sjal eða kápa, eða
möttull stundum.
Bronzikola, og vantar skaftið eða tangann nærri því að
öllu leyti. Hún er kringlótt, þverm. 10—10,6 sm., hæð
um 2,5 sm., þvkt um 0,4 sm. Mjög fornleg og jarð-
legin, og gagntekin af spansgrænu; skarð mikið í.
Breidd tangabútsins, sem eftir er, er 2,6 sm. í botnin-
inum virðast vera leifar af grútarskán og finst lýsis-
lykt af er hitað er mikið. Að líkindum frá miðöldun-
um. Sbr nr. 6492 að nokkru leyti.
Snœldusnúður úr steini, móleitum, hálfkúlumyndaður,
þverm. 3,6—3,9 sm., þ. 2,5 sm., gatið 0,8 sm. að vídd,
á ská í gegn. Sbr. nr. 6060 einkum.
Snœldusnúður úr gráum tálgusteini, hálfhnöttóttur,
þverm. 3,7 sm., þ. 2 sm., gatvídd 0,9 sm., ekki í miðju
fullkomlega, og nokkuð á ská í gegn. Ýmsir líkir til
áður.
Snœldusnúður úr grábláum tálgusteini með móleitum
eitlum, harðari, í. Hálfbnöttóttur, þverm. 4,2 sm., þ.
1,6 sm. Gatið 1 sm., dálítið á ská, ekki alveg í miðju.
Uti við röndina er smágat, sem þræða heflr mátt í
9