Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Blaðsíða 71
6694.
6695.
6696.
6697.
6698.
71
-grefti aftan á blaðinu og skaftinu, og heldur gröfturinn
sér enn vel. L. 21,3 sm.; þyngd 55 gr. Aftan á skaft-
inu eru hinir dönsku stimplar 4: Merki Khafnar með
árt. 1796; myntvarðarstimpillinn þá, F.; smiðsstimpillinn
sem virðist vera I IK (H og K sdr.), merki Johans
Henrichs Kemmerers') (meistari frá 1781—1823);ogsvo
mánaðarmerkinu V, sem er hrútsmerkið (20. marz—
20. apríl). — í skrautgreftinum á skaftendanum að aft-
an eru stungnir upphafsstaíirnir A. M. S., þ. e. Anna
Magdalene Steinbach í Stykkishólmi, sem átt hefir skeið-
ina, og síðan hefir skeiðin verið í Thorlaciusarætt þar;
síðast átti hana Árni Thorl., Daníelsson Árnasonar Thorl.
Sbr. 5388-89 og 5521.
2% Tygilknífur með útskornum tréskafti og í útskornum tré-
skeiðum og virðist þetta vera norskt verk frá síðustu
öldinni. L. hnífsins er 20,4 sm., skeiðanna 20.3 sm.
Þver fyrir egg. Látúnshólkur efst á skeiðunum, virðist
ekki upprunalegur. — Átt liefir fyrrum Sig. Magnússon
á Skinnastöðum.
3% Gunnar Hinriksson vefari, Reykjavík: Svipa með reyr-
skafti og nýsilfurshólkum á báðum endum með útrcnsli
á; eirkengur í fremra hólknum og tvöföld leðuról í.
L. skaftsins 34,2 sm. og ólarinnar 61 sm. Hefir til-
heyrt konu gefandans. Smíðuð um 1880 af Pétri Guð-
mundssyni silfursmið á Mýrum i Skriðdal.
%(, Hökull úr rauðbrúnu silki og eru ofin í blóm með gulln-
um þræði; fóðraður með svartbláu lérefti, grófgerðu.
Á baki er gullborðakross, 1. 66, br. 40 sm., og mjóar
gullborðaleggingar eru við jaðra, einnig um höfuðsmátt.
L. baksins er 86, br. 72 sm., en brjósthluta 1. 76, br.
52,5 sm, mælt eftir miðju. Nær hálfkringlumyndaður
að neðan. — Varla yngri en frá 16. öld. Stokkseyrar-
kirkju.
— Einar Jónsson skósmiður í Reykjavík: Látúnsmillur 10
að tölu, algengar, ferskeyttar og rúðóttar að ofan í
miðju, með spaða aftur úr. L. 2,3 sm., br. 1,6 sm. Sbr.
nr. 3724, 5282 o. fl.
— Sami: Látúnsmilla steypt eftir víravirkismillu, korn-
') Sjá Bernh. Olsen, De kjöbenh. Gnldsm. Mærker, nr. 123.