Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Side 74

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1915, Side 74
74 6711. s/10 6712. — 6713. »/10 6714. — 6715. — 6716. m/io frá fyrri hluta 18. aldar og gerð í Fritzoe steypu í Noregi.1) Sami: Ofnplata, virðist vera botnplata, 1. 100 sm., br. 37,5 sm. — Kringlótt gat við afturenda, 11,5 sm. að þverm. Valdemar Paulsen steypari í Reykjavík: Ofnplata, hlið- arplata úr »bíleggjara«, br. 73 sm, h. 72 sm. Eins og nr. 5703, með upphækkaðri mynd af vopnasmið, sem er að slá hjálm á steðja fyrir framan aflinn. — Blóm i skelstíl við vinstri röndina. — Brotið er úr ytra horn- inu að neðan. — Líklega frá Fritzoe steypu í Noregi og frá síðari hluta 18. aldar. Hœrupóki 1. 84 sm., samanlagður 65 sm. að br.; 8 horn- sylgjur við opið, sem er faldað, brotið innaf. Röndóttur með ljósum, mórauðum og brúnum röndum upp og ofan. Ofinn úr faxhári. Nýr; gerður í Teigi í Fljótshlíð. Sbr. nr. 6078. Lysislampi úr kopar með óvenju-víðum kúlum, nefsmá- um; þverm. 8 sm., en neflð 3,4 sm. að 1. og 2,9 að br. efst. Undirkúlan er þynnri en hin, miklu ellilegri og harla fornleg. Upphöld, stíll og festi er alt yngra og að sumu leyti gert úr útlendum hlutum. Svo virðist sem hin upprunalegu upphöld (eða skaft?) á undirkúlunni hafi ekki verið beint á móti nefinu, en nokkuð til hliðar. Koparstjaki rendur, hæð 25,5 sm., þverm. stéttar 12,5 sm. Kertiskrans með hólk settur í pípuna. Líklega frá 18. öld. Altari smiðað úr furu, h. 99 sm., br. 97 sm., dýpt 61,7 sm. Framhlið heil, samansett spjald í umgjörð, en ijúka má upp altarinu að ofan eins og kistu og er lok það 41 sm. að breidd, Lokið og framhliðin hafa verið skraut- lega máluð, en sú málning er nú að mestu leyti af. Hefir þetta átt að líta svo út sem dúkur væri á altar- inu með útsaumaðri brún, — með 7 manna-(postula)- myndum og kögri, og með altarisstólum, er á væru saumaðar guðspjallamannamyndir — virðast, þær hafa verið málaðar á umgjörðina beggja vegna. — Spjaldið virðist hafa átt að líta út sem altarisklæði með íofnum blómum með dökkum lit og ásaumuðum krossi, er verið ‘) Sbr. Harry Fett: Gramle norske ovne, bls. 77—78.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.