Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 44
48
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Á bls. 312 í þeirri bók birtist mynd, sem á að vera af Jörgen Jíirgen-
sen, sögð í eigu Frederiksborgarsafns á Sjálandi. Þegar þetta spurð-
ist hingað á Þjóðminjasafnið, þótti það nokkrum tíðindum sæta, því
að ekki var safnmönnum kunnugt um aðra mynd af Jörundi en
sjálfsmyndina, sem áður getur. Af þessu tilefni leitaði Kristján
Eldjárn þjóðminjavörður nánari upplýsinga hjá Povl Eller, safn-
verði í Frederiksborg. 1 tveimur bréfum, dags. 13. 9. 1966 og 24. 10.
1967, gerir Eller grein fyrir því litla, sem þar er vitað um þessa
mynd. 1 skýrslu safnsins er myndin (nr. A 1825) skráð á þessa leið:
„Jörgen Jiirgensen, hirðúrsmiður (1745—1811). Brjóstmynd, hæð
36,5, breidd 29 cm. Keypt af Winkel & Magnussen, sýningarnr. [þ. e.
númer í sýningarskrá 1943] 10394. Máluð af C. W. Eckersberg (?).“
Eins og þetta ber með sér, hefur safnið veitt myndinni viðtöku í þeirri
trú, að hún væri af Jörgen Júrgensen eldra, föður Jörundar hunda-
dagakóngs. Sú hugmynd, að málverkið sé af Jörundi, er seinna til
komin. Eller segir, að Carl Roos hafi vakið athygli á því, þegar hann
kom í safnið 1952, að ósennilegt væri tímans vegna („pá grund af
tidspunkterne“), að myndin væri af Jiirgensen hirðúrsmið, en lík-
legra, að hún væri af einhverjum sona hans. Ennfremur hafi Roos
virzt klæði mannsins minna á einkennisbúning, og styrkti það hann í
þeirri skoðun, að hún væri af skipstjóranum (þ. e. Jörundi), en ekki
úrmakaranum, föður hans og alnafna. Nú er ekki alveg ljóst, hvað
Roos átti við, þegar hann bar brigður á, að myndin gæti tímans vegna
verið af Júrgensen eldra, en ef hann hefur talið víst, að hún væri eftir
C. W. Eckersberg, er sú ályktun eðlileg. Myndin er af ungum manni,
varla miklu eldri en hálfþrítugum. Júrgensen hirðúrsmiður er hins
vegar nærri fjórum áratugum eldri en Eckersberg, sem er fæddur
1783. Hitt ætti að geta staðizt, að Eckersberg hafi málað mynd af
Jörundi hundadagakóngi á þeim aldri, t. d. í Khöfn 1806—07.
Þó að raunar sé ósannað, að Eckersberg hafi málað myndina, má
ekki gleyma því, að þetta er tilgáta manna, sem eru handgengnir
verkum hans. Eckersberg var á sinni tíð einn mesti og mikilvirkasti
„portrait“-málari Dana, og er alkunn hér á landi mynd hans af Bertel
Thorvaldsen.
Rökin fyrir því, að málverkið sé af Jörundi, virðast í fljótu bragði
heldur veigalítil. En safnverðir í Frederiksborg, sem ættu ekki að
vera neinir viðvaningar í að vega og meta slík rök, telja þó líkurnar
nógu sterkar til að hafa þetta fyrir satt, þar til annað kann að koma
á daginn.
Ekki er það einsdæmi, að menn hafi villzt á þeim Júrgensens-feðg-