Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Side 57
HAFGERÐINGAR
61
Eitt sinn var bátur á ferð inn Eyjafjörð á leið til Akureyrar. Gögn
brestur til þess að tímasetja þessa för með nákvæmni, en líklegast hef-
ur hún átt sér stað síðast á 18. öld eða snemma á þeirri 19. Frá þessari
Eyjafjarðarferð er sagt á þessa lund: — „En er inn sótti á fjörðinn
var það í logni, (að) boði mikill reis móti skipinu, svo inn hellti
kviku mikilli, og þegar svo annar mikill sjór, áð nær fyllti og sneri
skipinu. Þegar reis hinn þriðji boði svo mikill, að nær hvolfdi."
Síðar varð ekki frekar að, og náði báturinn heilu og höldnu í stilli-
veðri inn á Akureyri.1
Næst er að víkja að sögu úr Breiðafirði, en hún er á þessa leið: —
„Eggert Ólafsson í Hergilsey fór kaupstaðarför suður í Stykkis-
hólm, en skammt var hann kominn á leið vestur fyrir Hrappsey, er
veðuræsingur þaut á hann upp úr logni, en úr hófi þótti keyra, er
hann kom vestur úr Krosssundi. Sigldi hann nú með skauti einu,
því ei var voðhæft. Hugðist hann þá ná Bjarneyjum, en er nálgaðist
þær, var sem veðrið stæði af þeim, svo enginn var þess kostur. Sögðu
svo hásetar Eggerts, að þeim sýndist eldglæringar fylgja veðri því,
var þá og nótt á komin og alllöng, því mjög var farið að hausta.
Eigi sá af borðum út fyrir særoki og mvrkri. Lentu þeir um nóttina
síðla í Flatey, þar Bryggja heitir. Lægði þá veðrið, er þeir voru lentir
og gjörði það gott, er morgnaði. Við það fór Eggert af stað, en þá var
sem umhverfðist sjór að nýju, bað Eggert þá aftur að landi leggja —
—“.2 — Þessi atburður hefur ekki gerzt fyr en 1781, en það ár mun
Eggert hafa setzt að í Hergilsey.
Hinn 17. apríl 1834 gerði allt í einu bráðaveður, er einungis stóð
fjórar stundir, en á þeim tíma fórust 43 menn, er voru á sjó af
Akranesi og Álftanesi.3
Föstudaginn seinastan í góu árið 1700, er var hinn 8. marz, fórust
á einni eykt 129 menn í Gullbringusýslu.4
Grænlendingasaga greinir frá því, að einn af þeim mönnum,
er sigldu til Grænlands sumarið 986, hafi verið Herjólfur Bárðarson
frá Drepstokki, nú í Stokkseyrarhreppi. Meðal áhafnar hans var
suðureyskur máður kristinn. Fátt segir af ferð Herjólfs til Græn-
lands, en þegar þangað kom, nam hann land á Herjólfsnesi og þótti
hinn göfugasti maður. En á leið hans til Grænlands verða þau atvik,
sem koma Suðureyingnum til þess að yrkja Hafgerðingadrápu. Úr
1 Lbs. 1293 4to, bls. 171.
2 Lbs. 403 4to, bls. 14—15.
s Sunnanpósturinn I, bls. 7.
■t Árbækur Espólíns VIII, bls. 66.