Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 59

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 59
HAFGERÐINGAR 63 hvergi hli'ð á vera, og eru þær stórum fjöllum hærri, líkar brött- um gnípum, og vita menn fá dæmi til, að þeir menn hafi úr höfum komizt, er þar hafa í verið staddir, þá er þessi atburður hefur orðið. En því munu sögur vera af gjörðar, að guð mun æ nokkura hafa frelsað, þá sem þar hafa verið staddir, og mun þeirra ræða síðan dreifzt hafa og flutzt manna í millum, hvort sem nú er svo frá sagt sem þeir hafa helzt um rætt eða er nokkuð þeirra ræða aukin eða vönuð, og munum vér því varlega um þá hluti ræða, að vér höfum fáa þá hitt nýlega, er þaðan hafa komizt og oss kynni þessi tíðindi að segja".1 Ef til vill kemur það einhverjum einkennilega fyrir sjónir, að dæmin skuli vera talin upp í þeirri röð, sem hér er gert. Hvers vegna er endað á frásögn Konungsskuggsjár, en ekki Grænlandsferð Herjólfs frá Drepstokki, sem þó á sér stað nær þrem öldum fyrr en Konungs- skuggsjá er talin skráð, ef tímasetning er rétt? Því er til að svara, að ekki þykir lengur við hæfi að miða við þann tíma, er menn ætlast á um, að eitthvað hafi gerzt, eigi heldur við þann tíma, þá er atburður- inn er ritaður, ef heimildargagnið er glatað, nema fyrir tortímingu þess hafi fengizt fullvissa um, hvenær það var skráð. Tómas trúir ekki nema hann taki á. Öll nútímavísindi grundvallast á þeirri skoðun. Hins vegar skal það tekið skýrt fram, að munnleg geymd getur verið haldgóð, jafnvel þótt tveir eða þrír ættliðir og ef til vill fleiri hafi varðveitt frásögnina í huga sér, ef minnið er trútt. Gildir þá vitanlega einu, hvort sögnin er komin úr munnlegri geymd í upphafi eða hún hefur verið rituð, en frumhandritið glatazt, einhver numið það, sem á því var og efnið orðið að reikisögu, sem aftur er skrásett löngu síðar. Viðhorfið til þess að geyma mikið í minni var allt annað fyrir einni öld en nú er, þótt ekki sé lengra seilzt aftur. Af þeim sökum má með engu móti hafna munnlegu geymdinni án nákvæmrar rann- sóknar, ekki sízt, ef hún endurspeglar það, sem við þekltjum af eigin reynslu eða óvéfengjanlegum heimildum. Auðvitað getur frásögn, sem varðveitt er í frumgagni, verið meira eða minna ósönn, og gegnir sama um, hvort það er ungt eða gamalt. En hvað sem öllu þessu líður, verður, þegar um margra alda atburði er að ræða, að raða þeim eftir aldri handritanna, sem þeir eru varðveittir í, en ekki eftir þeim tíma, sem atburðurinn kann að hafa gerzt á, hversu miklar líkur, sem styðja það, að hann sé réttur. Ætti nú að vera ljóst, hvers vegna röðin á þrem síðustu atburð- l Konungsskuggsjá, Oslo 1945, bls. 27—28.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.