Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Side 73
GAMLI bærinn á víðivöllum
77
austurhorninu, skáhallt framan við hennar hlóðir, en amma hennar
hafði hitt, og stóð það í horninu suðvestan við hlóðir hennar. — Úti-
dyr voru á eldhúsinu nálægt norðausturhorninu, og þrír stórir stromp-
ar voru á því, en annars engir gluggar.
Suður af eldhúsinu var baðstofan. Hún var á palli með þremur hús-
um undir. Upphaflega var hver hæð sex stafgólf, en síðar var báð-
stofan lengd til suðurs um eitt stafgólf, og urðu þau því sjö uppi.
Gengið var úr göngunum nær syðst inn í herbergi, sem var þrjú
stafgólf á lengd, en breiddin mun hafa verið sem næst tveimur staf-
gólfum, eins og baðstofan að öðru leyti. Þetta herbergi eða hús var
kallað „miðstykkið“, og þegar komið var inn varð fyrir lítill fanga-
klefi á vinstri hönd. Hann var frá tíð sýslumannanna, og höfðu þeir
geymt þar fanga um stundarsakir. Klefinn var ekki stærri en sem
svaraði einu rúmi, og yfir honum var rúm, sem sá, er gætti fanganna,
hafði sofið í. I klefanum voru hlekkir, sem fangarnir voru hlekkjaðir
með. — Tveir háir 6 rúðu gluggar voru á austurhliðinni, en sunnan
við þá var stigi upp í baðstofuna sjálfa.
Norðan við þetta herbergi var hús, tvö stafgólf að lengd, og voru
dyrnar í það á miðju þili. Þetta hafði verið skrifstofa sýsluskrif-
aranna. Hún var máluð með eikarmálningu, og voru tvö rúm við
austurvegg og eitt við vesturvegg norðanverðan, og var það lok-
rekkja. Sunnan við hana var stigi upp í nyrzta húsið í baðstofunni,
sem verið hafði svefnhús sýslumannshjónanna. Tveir gluggar voru
á austurhlið skrifstofunnar, hvor yfir sinu rúmi, og voru þeir eins
og gluggarnir í miðhúsinu.
Syðsta herbergið niðri var eitt stafgólf að lengd með einum glugga
til austurs, sem var af sömu gerð og hinir. Þetta hafði áður fyrr
verið svefnhús, en í seinni tíð var það lítið notað, helzt geymdir þar
rokkar eða þess háttar. — Öll voru þessi herbergi þiljuð.
Baðstofan sjálf skiptist einnig í þrennt, miðbaðstofu og svo hús
til beggja enda. Miðbaðstofan var þrjú stafgólf og var gengið í hana
upp stiga úr miðherberginu niðri, sem fyrr getur. Hleri var yfir
uppgöngunni. Að vestan voru þrjú rúm og tvö að austan, annað í
syðsta en hitt í nyrzta stafgólfi.
Norðurhúsið var á þessum tíma svefnhús þeirra hjóna Sigurðar
Jónatanssonar og Sigurlaugar Gísladóttur, en fyrrum hafði það verið
svefnhús sýslumannanna og síðar Péturs prófasts. Þess vegna var
stigi þaðan niður í skrifstofu skrifaranna, og hefur sýslumaður getað
haft með því samband við þá án þess að taka á sig króka. En hler-
inn yfir uppgöngunni var sjaldan opnaður í seinni tíð. t norðurhús-