Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Síða 76
80
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
er nú tæpur helmingur af því, sem upphaflega hefur verið. „Nýja
stofa“ hefur hins vegar verið byggð af sérstökum þörfum. Yfirvaldið
liefur þurft eigin skrifstofu, þar sem það gat unnið störf sín í ró og
næði, laust við skarkala heimilislífsins, og krókurinn á mótum búrs
og baðstofu hefur verið ákjósanlegur fyrir slíkt afdrep, og þá hefur
forstofan verið útbúin til enn meiri einangrunar. Þessi stofa var
einnig eina húsið á bænum með sérstakri upphitun, en það hefur
verið óvenjulegt á þeim tímum.
Sé útlitsteikningin af Víðivallabænum borin saman við mynd í
ferðabók Gaimards af bænum á Mælifelli 1836, sést, áð frambærinn
þar er á þeim tíma með mjög svipuðu sniði. Lengst til vinstri sést
skemma, þá stór stofa með útidyrum, þá bæjardyr með lofti yfir og
lengst til hægri sér í skála. Þar er sama þróunarstigið og á Víðivöll-
um, enda er þetta þekkt víðar um land, svo sem nýjustu rannsóknir
hafa leitt í ljós9.
Þótt bærinn á Víðivöllum væri vel stæðilegur og hinn bezti til íveru
alla 19. öld, ef til vill að „nýju stofu“ undantekinni, hefur hann verið
óhentugur að ýmsu leyti. Hann var orðinn óþægilega stór fyrir heim-
ilið, og mikill hluti hans var lítið notaður. Gamli skálinn var einnig
farinn áð þykja til lýta, enda hafa burstabæir þá verið komnir víða
á þessum slóðum og skartað sínum hvítu þiljum með reisn. Torfskál-
inn gat ekki keppt við þau hvað fegurð snerti, og því er það 1895, að
Sigurður Sigurðsson gerir allmiklar breytingar á bænum. Hann rífur
„nýju stofu“, skálann og búrið aftan við hann, enda var þess ekki
lengur þörf, þar sem tvíbýli var ekki lengur á jörðinni. I stað þessara
húsa byggði Sigurður stórt hús með þili og burst fram á hlaðið. Var
stofa fremst og svefnherbergi sunnan við hana, en eldhús („maskínu-
hús“) og smábúr aftast. Þótti bærinn fríkka mikið við þessa breyt-
ingu, enda var nú stigið síðasta skrefið til burstabæjar á Víðivöllum.
Baðstofuna reif Sigurður einnig síðar og byggði aðra á sama stað.
Var hún ekki á porti eins og hin fyrri, en samt stórt og gott hús.
Hinn 14. apríl 1908 brann írambærinn allur og miðbærinn, en bað-
stofan varð með naumindum varin. Var frambærinn alelda, er fólkið
kom á fætur, og „gamla stofa“ fallin. Björguðust aðeins skemmurnar
tvær, sem voru sunnan við stofuhúsið, auk baðstofunnar. Varð þarna
geysimikið tjón, bæði í húsum og lausafé. Eftir brunann voru
byggðar nýjar bæjardyr og stofuhús sunnan við þær, hvort tveggja
með burst fram á hlaðið, en þessi hús brunnu 25. marz 1959. Urðu
báðir brunarnir í vikunni fyrir páska.
Eftir þennan bruna var reist núverandi íbúðarhús á Víðivöllum,