Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Blaðsíða 132
136
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
sumarið sem brýr eru á ánum og mannaferð mjög mikil um Þjórs-
árdal, m. a. vegna hinna miklu virkjanaframkvæmda, sem þar eru
hafnar.
Samkvæmt ósk ábúenda á Burstarfelli var gamli bærinn þar ekki
til sýnis í sumar. Seint á þessu ári var úr honum flutt og í nýja húsið
og þarf þá að gera ráðstafanir um framtíð hans af þeim sökum.
Haldið var áfram á þessu ári að athuga möguleika á áð halda við
torfbæjunum á Þverá í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu og á Skafta-
felli í Öræfum, en ekkert var þó að gert á árinu.
Sóknarnefnd Búrfellskirkju í Grímsnesi bjó sig undir að gera við
gömlu kirkjuna þar, og óskaði þjóðminjavörður eftir að fá að fylgj-
ast með því verki, þar sem um er að ræða gamla og merka byggingu.
Var því vel tekið, og varð það að ráði, að Hörður Ágústsson yrði til
ráðuneytis um viðgerðina. Fóru þjóðminjavörður og hann nokkrum
sinnum að Búrfelli til skrafs og ráðagerða um þetta mál, og gekk
það allt að óskum. Var fullt tillit tekið til þeirra ráðlegginga, sem
þeir gáfu um viðgerðina.
Eins og fram kemur í skýrslu síðastliðins árs, setti þjóðminja-
vörður sig í samband við danskan arkitekt, Karsten Rönnow að
nafni, og ráðfærði sig við hann um Sívertsenshúsið í Hafnarfirði.
Hafði verið bent á þennan mann sem sérstakan kunnáttumann í með-
ferð gamalla húsa. Þegar til kom, þótti réttast, að hann kæmi hingað
til lands, rannsakaði húsið og legði á öll ráð um viðgerð þess. Kom
hann til landsins hinn 20. jan. og var hér til 29. jan. Rannsakaði hann
húsið hátt og lágt og mældi það upp og gerði sér grein fyrir, hvernig'
hvað eina hefði verið, og gerði síðan fyrirmæli um viðgerðina. Þótti
öllum sem málið lægi allt ljósara fyrir á eftir, enda er þetta eina
rétta leiðin, þegar slíkt verkefni liggur fyrir. Því miður dróst mjög
langt fram eftir ári, áð hafizt væri í alvöru handa um viðgerðina, en
þar kom þó, og var seint á sumri endurnýjuð öll klæðning utan á hús-
inu og gluggar smíðaðir. Ætlunin hafði verið að ljúka við það að
utan að öllu leyti, en lengra varð þó ekki komizt, og er þakið allt
eftir. Vonandi verður þó gott framhald á þessu verki, og reyndar er
þegar nógu langt komið til að tryggja framtíð hússins, og það er ef
til vill fyrir mestu.
Þótt ekki teljist til bygginga, skal hér minnzt á tvo gamla báta,
sem koma safninu við, Sjóminjasafnið, sem er deild í Þjóðminjasafn-
inu nú, keypti á sínum tíma áraskipið Farsæl á Eyrarbakka. Var hann
lengi í vanhirðu og úrræði lítil til að gera honum til góða. Sigurður Guð-
jónsson skipstjóri á Eyrarbakka hafði þá framtak til að koma honum