Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1967, Page 133
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1966
137
í hús og hlynna að honum eftir föngum. Hefur hann síðan haft sam-
ráð við safnið um meðferð bátsins, og nú hefur hann látið gera við
hann vel og vandlega. Það starf vann gamall skipasmiður, Jóhann
Sigurjónsson, undir umsjá Sigurðar, en safnið kostaði viðgerðina.
Hvernig sem bátnum verður ráðstafað í framtíðinni, ætti tilvera
hans héðan af að vera tryggð.
Þá komu boð um að Erlingur Sigurðsson bóndi í Sólheimahjáleigu
í Mýrdal vildi gefa safninu merkan gamlan bát, Vonina, smíðaða
1896, sem er af þeirri gerð skipa, sem tíðkuðust um þessar slóðir
áður og mun vera líkur skipinu Pétursey, sem nú er í Skógum. lllt
þótti að geta ekki tekið þessu boði, og varð það úr með ráði Þórðar
Tómassonar, að bátnum skyldi til bráðabirgða komið fyrir í helli
undir Dyrhólaey, og er talið að þar geti hann verið um tíma sér að
skaðlausu.
Alvarleg tíðindi mega það teljast, að Krýsuvíkurkirkja var rænt
um helgina 13.—14. ágúst. Hafði verið brotizt inn í kirkjuna og rænt
tveimur kirkjuklukkum, tveimur altarisstjökum, ljósahjálmi og hurð-
arhring. Er því líkast sem sótzt hafi verið eftir kopar, en annars er
með öllu ókunnugt hverjir þarna hafa verið að verki, því áð ekki
hafðist upp á ræningjunum, þrátt fyrir mikla rannsókn lögreglunn-
ar. Dýrmætir voru þessir hlutir ekki aðrir en önnur klukkan, sem
bar ártalið 1747 og upphafsstafi Krýsuvíkurbónda. Hins vegar er
atburðurinn leiðinlegt tímanna tákn og bending um, hvað kynni að
geta gerzt annars staðar, þar sem eftir meira er að slægjast.
Krýsuvíkurkirkja var aðeins opin nokkrar helgar og annaðist Jó-
hannes Jónsson kennari gæzlu hennar.
Byggbasöfn.
Upphæð þeirri, sem á fjárlögum er ætlað til að koma upp húsum
yfir byggðasöfn, kr. 300.000.00, var að þessu sinni skipt þannig, að
Minjasafnið á Akureyri fékk kr. 100.000.00, Byggðasafn Húnvetn-
inga og Strandamanna á Reykjum kr. 100.000.00, Byggðasafn Vest-
mannaeyja kr. 50.000.00 og Byggðasafn Árnessýslu kr. 50.000.00, en
greiðslu til þess síðastnefnda hafði aldrei orðið lokið eins og það átti
rétt á. Áfram er haldið að vinna að byggðasafnsmálum víða, og þok-
ast allt í rétta átt, þótt víða sé við mikla örðugleika áð etja.
Þjóðminjasafnið hefur látið byggja yfir hákarlaskipið Ófeig- á
Reykjum í Hrútafirði, og er húsið sambyggt byggðasafninu þar. Því
hefur svo farið, að safnið hefur talið sér skylt að hjálpa til við að
koma byggðasafninu upp. Á þessu ári lét það setja upp báðstofu frá