Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Side 143

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Side 143
HANDRITADEILD LANDSBÓKASAFNS 143 gjört það um langan tíma aldurs síns, en sjónina hafði hann jafnskíra áttræður sem á fertugs aldri, eftir því sem hann sagði sjálfur frá, en síðast sá hann ekki neitt með öðru auganu. Allt frá því 1860 ritaði hann bæði snarhönd og fljótaskrift, hvort tveggja aðdáanlega fagurt, en settletur og uppdrætti með afbrigðum, en á seinni ár- um hans var höndin farin að stirðna, en brá þó oft til hins einkennilega handarlags, einkum á settletri.“ Onefnd átti ég söfn þjóðskjalavarðanna Jóns Þorkelssonar og Hannesar Þorsteins- sonar. Kjarninn í safni Jóns forna var kominn frá séra Arnljóti Ólafssyni, en hann hafði aftur fengið sumt frá Hólum í Hjaltadal; en margt var Forna komið frá Ólafi Thorlacíusi kaupmanni í Stykkishólmi. í safni Hannesar skipaði ættfræðin öndvegi með fágætum ættfræðibókum, sem Hannes hafði fengið flestar eða allar frá Jóni dóm- stjóra Péturssyni tengdaföður sínum. Er þar víða að finna íauka eftir Jón, Hannes og ýmsa fleiri. Enn skal þessi þula lengd nokkuð. Verður þá næst fyrir Sighvatur Grímsson Borg- firðingur. Landsbókasafn festi kaup á handritum hans 1906 og öllu, sem hann kynni að skrifa í framtíðinni, en hann fengi 350 krónur á ári í lífeyri beint frá safninu. Og Sighvatur skrifaði þindarlaust allt til ársins 1930, er hann dó nær níræður að aldri. Voru safninu þá afhent handrit hans, 180 að tölu. Efnið í handritum Sighvats er af ýmsum toga, en einna merkastar verða Prestaævir hans í 22 bindum. Sighvatur má með réttu kallast lærisveinn Gísla Konráðssonar, og var skriftarástríða hans óseðj- andi. Ævisaga hans fram til 27. des. 1892 í eiginhandarriti er varðveitt í Lbs. 3623, 8vo. Þar segir hann m. a. um sjálfan sig: „Nú var það á þessum árum, að hann var kominn í fullkomin kynni við Gísla Konráðsson, sem léði honum hvert handritið á fætur öðru, eftir því sem Sighvalur gat yfir komizt að afrita, og fræddi hann og leið- beindi á allar lundir, enda var sem nýr heimur opnaðist fyrir Sighvati, þegar hann komst í kynni við Gísla. Og þótt Sighvatur væri vinnumaður og hefði litla tíma, þá not- aði hann hverja stund, sem mest mátti verða, bæði nætur og daga, til að afrita sögur Gísla og fræðirit. Hvern helgidag, sem hann var í Flatey, vóru þeir saman frá morgni til kvelds, og þótt Gísli væri hinn mesti gleðimaður fram á hin háu elliár sín, þá var honum oft mikið angur að, þegar þeir urðu að skilja, og lét hann það oft í ljósi. Þannig vóru öll þau ár, sem þeir höfðu kynni saman, að Sighvatur hafði þar jafnan opinn hinn mikla fræðifésjóð, og var það Gísla hin mesta ánægja . ..“ Að loknum þess- um lestri vekur það vafalaust enga undrun með mönnum, þegar þeir heyra, að Presta- ævir Sighvats einar saman eru alls 14250 blaðsíður, og er mér ekki láandi, þótt mér hlýnaði um hjartarætur, þegar ég fyrir skömmu sá rímur eftir hann í eiginhandarriti austur á landi. Þá er að nefna handrit Jónatans Þorlákssonar frá Þórðarstöðum í Fnjóskadal, en handrit hans voru keypt 1906 og eru allmerk, einkum um þingeyskar ættir. Upp frá þessu fer stórum handritasöfnum að fækka, en mörg nöfn skjóta upp koll- inum: Þorvaldur Thoroddsen prófessor, Eiríkur Magnússon í Cambridge, Torfi Bjarnason í Ólafsdal, séra Rögnvaldur Pétursson vestan um haf, Magnús Jónsson í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.