Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1971, Qupperneq 149
UM FLOKKUN BÓKA
149
Þegar við virðura fyrir okkur þessi kerfi í aldursröð, kemur í ljós, að Melvil Dewey
er brautryðj andinn. Það var auðveldari eftirleikurinn, en ekkert kerfi hefur hlotið
eins mikla úthreiðslu og kerfi Deweys. Munu 90% safna í Kanada og Englandi nota
Dewey-kerfið. Það mun nú vera notað í 87 þjóölöndum.
Kerfi Cutters (1837-1903), Expansive classijication, náði lítilli útbreiðslu. Þar veld-
ur að sjálfsögðu einhverju um, að Cutter notar bókstafi til að auðkenna flokka, en
Dewey, eins og kunnugt er, tölur.
Universal decimal classification var búið til í því skyni að skrá öll rit og tíma-
ritsgreinar, sem út höfðu veriÖ gefnar í heiminum. Það verk strandaði, en kerfið,
sem reist er á tugakerfi Deweys, er enn notað. Marktölur í hundruðum eru styttar
um tvo stafi og í tugum um einn staf. Nýmæli í þessu kerfi er að sýna ýmsa fleti á
sama viðfangsefni með nýjum táknum. Þeir, sem lesiö hafa sér lil um svonefnda
„documentation“, hafa ekki komizt hjá að kynnast kerfinu. KerfiÖ hefur verið gefið
út í nokkrum löndum, og virðist hagnýtt gildi þess ótvírætt.
Kerfi þjóÖbókasafns Bandaríkjanna, Library of Congress, er byggt upp af sér-
fræðingum, sem sáu um gerð einstakra flokka. Þeir lögðu til grundvallar bækur
safnsins og skildu eftir eyður fyrir ný efni, sem upp kynnu að koma. Einstakir flokkar
kerfisins hafa verið gefnir út, en án efnisorðalykla. Helzta hj álpartækið, sem söfn hafa,
er Subject headings used in the dictionary catalog of Library of Congress. — Kerfi
Library of Congress hefur hlotið talsverða útbreiðslu meðal stærri safna af ýmsum
tegundum. Síðan 1901 hefur Library of Congress selt ýmsum söfnum spjaldskrár-
spjöld, þar sem gefnar eru upp marktölur kerfisins og einnig marktölur Dewey-kerfis.
Kerfi Browns (1862-1914), Subject classification, er eingöngu notaÖ í nokknun
enskum söfnum. Brown byggði kerfi sitt upp á allt annan hátt en Dewey, safnaði sam-
an efnisþáttum á einn og sama stað, þar sem Dewey dreifði þeim aftur á móti eftir
efni. Kemur þetta bezt fram í efnisoröaskrá Deweys, sem ég mun víkja að síðar.
Indverjinn S. R. Ranganathan (1892- ) kom 1933 fram með kerfi sitt, Colon
classification. Hann flokkaði fyrst bækur í háskólasafninu í Madras eftir þessu kerfi.
1931 kom út bók eftir Ranganathan, sem nefndist: Five laws of librarianship - fimm
lögmál bókasafnsfræða.
Þessi lögmál hljóða svo:
1. Bækur eru til notkunar.
2. Bók handa hverjum lesanda.
3. Lesanda að hverri bók.
4. Sparaðu tíma lesandans.
5. Bókasafn er stofnun í vexti.
Kerfi Ranganathans hleypti af stað miklum skrifum um flokkun. Hann ritaði sjálfur
mikið um þetta efni og hefur óneitanlega komið fram með ýmsar nýjar og athyglis-
verðar kenningar. Kerfi Ranganathans ber nafn af notkun tvípunkts - colon -. Það
minnir mjög á UDC kerfið. Ranganathan sýnir fram á, að við flokkun bókar eigi
marktalan að leiða í ljós fimm eigindir: einstaklingseðli, efni, orku, rúm og tíma