Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 80

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Page 80
80 ÓLAFUR F. HJARTAR fékk hann það hlutverk að halda með Hákoni konungi til Eng- lands. Hann þjálfaði norska hermenn í Skotlandi og síðar í Kanada. Þar lézt hann árið 1942. Grieg yrkir um hann kvæði, General Fleischer. Útlæg hans aska bíður ættmoldar, bak við höf. Enn kunna ár að líða, áður en hún fær gröf. En þeir, sem næst sækja að Narvík í norskum innrásarher, hafa yfir hjarnbleik fjöllin hjartað í fylgd með sér. Nordahl Grieg hafði loforð fyrir útgáfu ljóða sinna hjá Helgafelli í Reykjavík og Bonnier í Stokkhólmi. Hann lagði allt kapp á að ljúka við ljóðasafnið. Hann hugðist yrkja ljóð um Island, en það fór svo, að það barst ekki þangað, þegar bókin Friheten var gefin út. Grieg hafði sótt um leyfi til að fljúga með brezkum árásarflugvélum yfir Þýzka- land. Það tók hann langan tíma að fá slíkt leyfi, en það var að lok- um veitt. Gerd Grieg fór aftur til Islands í apríl 1943. Leikritið Veizlan á Sólhaugum eftir Ibsen var sýnt á vegum Norræna félagsins á leiksviði. Gerd var leikstjóri. Til London kom hún aftur í júní 1943. Þau hjón- in dvöldu nokkra daga í London. En skáldið yfirgaf borgina til þess að fá betra næði til að yrkja. Hann bjó um skeið í litlurn bæ, Tewkes- bury skammt frá Stratford on Avon. Leið Gerd lá til Skotlands til þess að undirbúa skemmtiskrá fyrir norska hermenn. Síðar um sum- arið gátu þau verið saman í Invershin í Norður-Skotlandi um hálfan mánuð. Grieg var með allan hugann við hið nýja ljóðasafn. Hann hafði nú lokið við hið stóra kvæði, Wergelandsfanen, og einnig kvæðið um Viggo Hansteen. Gerd Grieg fór til íslands í október 1943. Hún var leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur og fór með aðalhlutverk íPaul Lange og Tora Parsberg eftir Björnson. Hún leiðbeindi einnig við æfingar á Pétri Gaut eftir Ibsen, en ekki var leikritið allt sýnt. 1. nóvember 1943 skrifar Nordahl Grieg konu sinni, að varla geti hann sent íslandsljóðið að sinni. Meðan Gerd dvaldi hér, var byrjað að setja ljóðin. Grieg hafði í hyggju að fara til íslands og lesa prófarkir. Hann hafði stöðugt bréfasamband við konu sína varðandi útgáfuna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.