Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 5
Grímur M. Helgason deildarstjóri
f. 2. september 1927-d. 26. desember 1989
Það urðu okkur í Landsbókasafni mikil sorgartíðindi, er við
fréttum lát Gríms M. Helgasonar, forstöðumanns handritadeildar
safnsins. En hann lézt að kvöldi annars jóladags á Landspítalanum
eftir skamma legu þar.
Grímur Margeir Helgason, eins og hann hét fullu nafni, fæddist
2. september 1927 á Leifsstöðum í Vopnafirði, sonur Helga
Kristins Einarssonar bónda þar og konu hans, Vigdísar Magneu
Grímsdóttur bónda í Hvammsgerði í Vopnafirði, Grímssonar. Þau
fluttust úr Vopnafirði til Seyðisíjarðar, og þar ólst Grímur upp og
gekk í barnaskóla. Þegar hann hafði aldur til, hóf hann nám í
Menntaskólanum á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi vorið
1948. Að því loknu kenndi hann einn vetur í barna- og miðskóla
Seyðisfjarðar. Hugur hans stóð þó til náms í íslenzkum fræðum, og
lauk hann cand. mag. prófi frá Háskóla Islands 1955. Eftir það
réðst hann kennari við Verzlunarskóla Islands, fyrst stundakenn-
ari tvö ár, en síðan fastur kennari 1957-62 og naut mikilla
vinsælda í því starfi. Hann réðst bókavörður í Landsbókasafni um
haustið 1962 og þá þegar sem starfsmaður handritadeildar safns-
ins. Þegar Lárus H. Blöndal lét 1. desember 1967 af starfi
forstöðumanns handritadeildar og gerðist borgarskjalavörður,
var Grímur ráðinn forstöðumaður deildarinnar og gegndi því
starfi til dauðadags. Á kennaraárunum vann Grímur um hríð að
útgáfu Pontus rímna á vegum Rímnafélagsins. Verkið allt er 568
síður, þar af rækilegur formáli Gríms 82 síður og orðamunur,
skýringar, athugasemdir og nafnaskrá 75 síður. Pontus rímur
komu út sem Rit Rímnafélagsins X, Reykjavík 1961.