Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 137
LANDSBÓKASAFNIÐ 1989
137
STARFSLIÐ Hildur Eyþórsdóttir deildarbókavörð-
ur var í launalausu leyfi allt árið vegna
framhaldsnáms í bókasafnsfræði við McGill-háskólann í Montreal
í Kanada.
Rannveig Gísladóttir bókasafnsfræðingur vann sem bókavörð-
ur allt árið í Qarveru Hildar Eyþórsdóttur. Rannveig var í 80%
starfi frá 1. maí.
Regína Eiríksdóttir, sem var í % starfi, gegndi samkvæmt eigin
ósk /i starfi frá 1. marz. Frá sama tíma var ákveðið, að Anna
Georgsdóttir yrði í 14 starfi í stað hálfs starfs áður.
Þar sem Axel Kristinsson, er settur var bókavörður í fullu starfi
frá 1. nóv. 1988, óskaði að minnka við sig um helming frá
áramótunum 1988/1989, var Guðmundur Þórhallsson ráðinn í
hinn helming starfsins.
Helga Kristín Gunnarsdóttir bókavörður var í barnsburðarleyfi
frá 1. maí til septemberloka, síðan í sumarleyfi til 17. nóvember og
úr því í kauplausu leyfi til áramóta.
Þorsteinn Kári Bjarnason B.A. var ráðinn í hennar stað frá 22.
júní og gegndi því til áramóta.
Tómás Helgason fyrrum húsvörður Safnahússins, er unnið
hefur nokkur ár í hlutastarfi í þjóðdeild safnsins við móttöku
prentskila, lét af því fyrir aldurs sakir í júlílok.
Guðmundur Þórhallsson, er var í /• starfi sem bókbindari og /•
sem bókavörður, lét af bókbindarastarfmu í júlílok og var þá settur
í fullt starf bókavarðar frá 1. ágúst með móttöku prentskilaeintaka
sem aðalstarf.
Gísli Ragnarsson lét 26. september að eigin ósk af starfi sínu sem
deildarstjóri deildar erlendra rita, en hann réðst um þær mundir
forstöðumaður Ameríska bókasafnsins í Reykjavík.
Arnþrúður Sigurðardóttir bókasafnsfræðingur vann í tíma-
vinnu í /> starfi frá 26. október -31. desember.
Bryndís ísaksdóttir var sett bókavörður í /• starfi frá 1. nóvem-
ber að telja. Hún vann áður í Landsbókasafni, 1983 og 1985-1986.
Ragnar Gylfi Einarsson bókbindari fór samkvæmt eigin ósk í 'A
starf 15. nóvember, en Sigurþór Sigurðsson bókbindari vann frá
sama tíma fullt starf á bókbandsstofu safnsins.