Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 140
140
LANDSBÓKASAFNIÐ 1989
ALDARÁRTÍÐ Landsbókasafn íslands og Háskóli
GUÐBRANDS Islands höfðu samvinnu um það að
VIGFÚSSONAR bjóða dr. Bencdikt S. Benedikz bóka-
verði við Háskólabókasafnið í Birming-
ham hingað heim, og llutti hann fyrirlestur um Guðbrand í boði
heimspekideildar Háskólans á sjálfan ártíðardaginn 31. janúar að
viðstöddum íjölda áheyrenda.
Fyrirlesturinn var síðar á árinu birtur í Andvara.
SÝNINGAR í tilefni af aldarártíð Guðbrands Vig-
fússonar 31. janúar var efnt til sýningar
á verkum hans í anddyri Safnahússins. Fjölbreytt handritasýning
stóð sumarmánuðina.
Um sýningu á nokkrum bókum og handritum Halldórs
Laxness, sjá næstu grein.
BRJÓSTMYND Hinn 26. október 1989 var afhjúpuð í
HALLDÓRS LAXNESS anddyri Safnahússins brjóstmynd
Halldórs Laxness í tilefni af því, að liðin
voru 70 ár frá útkomu fyrstu bókar hans, Barns náttúrunnar.
Gert er ráð fyrir, að myndin verði á sínum tíma flutt í Þjóðarbók-
hlöðu, þar sem verkum skáldsins verði ætlaður sérstakur staður.
Myndina gerði að eigin frumkvæði norski listamaðurinn Nils Aas,
en ríkisstjórn Islands keypti einu afsteypu myndarinnar, sem til
var og hér er komin. Dótturdóttir skáldsins, Auður Jónsdóttir,
aflijúpaði myndina að Halldóri og fjölskyldu hans viðstöddum.
Ávörp fluttu Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður. I ávarpi ráðherra kom fram, að í
ráði væri að verja sérstöku fé til eflingar söfnun og úrvinnslu
gagna varðandi skáldið og verk þess.
I sambandi við athöfn þessa var sett upp sýning fáeinna bóka og
handrita skáldsins, en Landsbókasafn á auðvitað fyrir geysimikið
safn verka og handrita Halldórs Laxness.
ALÞJÓÐLEGT Þetta gamla nauðsynjamál var á árinu
BÓKNÚMERAKERFI tekið upp að nýju, og fól Menntamála-
ráðuneytið Landsbókasafni að hafa for-
göngu um það. Haft var samband við alþjóðlegu bóknúmeraskrif-
stofuna í Berlín og málið jafnframt undirbúið að öðru lcyti.