Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 20
JÓN ÞÓRARINSSON
Karl O. Runólfsson
tónskáld
Karl O. Runólfsson fæddist í Reykjavík 24. október 1900. Karl
Otto hét hann fullu nafni. Runólfur faðir hans, f. 30. mars 1860,
Guðmundsson var ættaður frá Ardal í Andakíl í Borgarfirði.
Hann stundaði ýmis störf á sjó og landi, var síðast verkstjóri í
vegavinnu, en andaðist þegar Karl var á tíunda ári, 10. janúar
1910. Kona hans og móðir Karls var Guðlaug Margrét, f. 21. apríl
1863, d. 21. maí 1931, Guðmundsdóttir frá Saltvík á Kjalarnesi.
Karl gekk í Iðnskólann í Reykjavík og nam prentiðn á árunum
1915—18. Starfaði hann síðan sem prentari til ársins 1925, en þá
ákvað hann að helga sig óskiptan tónlistinni. Hugur hans haíði
snemma hneigst í þá átt og greip hann hvert tækifæri sem bauðst til
að taka þátt í tónlistariðkun. Hann var á íjórtánda ári þegar
Hallgrímur Porsteinsson stofnaði lúðraflokk sem Svanir nefndist
og starfaði á vegum barnastúku góðtemplara með sama nafni.
Karl gekk til liðs við þennan flokk. Alla tíð síðan var nafn hans
nátengt starfi lúðrasveitanna í landinu, og starfaði hann með þeim
ýmist sem trompetleikari, kennari, stjórnandi eða forystumaður í
félagsmálum þeirra.
Svanir störfuðu aðeins frá hausti 1914 til vors 1915, en þá var
stofnað Lúðrafélagið Gígja, sem varð arftaki fyrrnefnda flokksins,
og var Karl þar einn stofnenda. Valdist hann brátt til trúnaðar-
starfa og var formaður Gígju 1922, þegar hún sameinaðist Lúðra-
félaginu Hörpu og stofnuð var Lúðrasveit Reykjavíkur sem enn
starfar. Tók hann sæti í fyrstu stjórn Lúðrasveitar Reykjavíkur,
kenndi lúðrasveitarmönnum og stjórnaði sveitinni um tveggja ára
skeið. Síðar stjórnaði hann Lúðrasveitinni Svan frá 1938 til 1960.
Hann var aðalhvatamaður að stofnun Sambands íslenskra lúðra-
sveita 1954 og formaður þess fyrstu tíu árin. Frá árinu 1955 til