Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Blaðsíða 132
132
LANDSBOKASAFNIÐ 1989
um. Allt bundið í eina bók. Keypt af Svövu Guðjónsdóttur
fornbóksala.
Pessir hafa afhent handrit, án þess að þeirra verði hér nánara
getið: Arngrímur Sigurðsson, Reykjavík. Dr. Broddi Jóhannes-
son, Reykjavík. Friðrik Þórðarson málfræðingur, Osló. Gunnar
Sverrisson, Reykjavík. Gunnar Valdimarsson fornbóksali, Reykja-
vík. Hafsteinn Guðmundsson bókaútgefandi, Seltjarnarnesi.
Halldór J. Jónsson safnvörður, Reykjavík. Haraldur Jóhannsson
hagfræðingur, Reykjavík. Katrín Ólafsdóttir Hjaltested, Reykja-
vík. Magnús Einarsson safnvörður, Ottawa. Skúli Helgason fræði-
maður, Reykjavík.
ÞJÓÐDEILD Ritauki þjóðdeildar var á árinu 5104 rit,
þar af 363 erlcnd rit um íslenzk efni. Að
auki er mikið magn smáprents.
A árinu tókst að koma út þremur árgöngum Islenzkrar
bókaskrár, 1985, 1986 og 1987, og þess að vænta, að á árinu 1990
verði hægt að vinna hana upp enn frekara.
Reynt var á árinu að gera sér grein fyrir heildarritakosti
íslenzkum í Landsbókasafni, eins og hann var í árslok 1988.
Niðurstaðan var þessi:
27.225 bindi blaða og tímarita
48.500 bindi bóka, aðaleintaka
24.275 umslög í 900 öskjum, bækur, aðaleintök
30.000 bindi varaeintaka, rita sérsafna, aukaeintaka
Töluvert erlent efni var flutt úr Safnahúsinu í geymslu utan
safns til að rýma fyrir íslenzka efninu, en reyna verður að halda því
í lengstu lög í aðalsafninu. Vegna þrengsla er aðstaða þeirra, er
vinna við íslcnzka efnið, í mörgu erfið, því að hún krefst mikils
svigrúms, ef vel á að vera. Þörfm á að ljúka Þjóðarbókhlöðu verður
brýnni með hverju ári og örðugt að sjá, hvernig húsnæðismál
verða leyst til bráðabirgða, svo að viðunandi verði.
DEILD ERLENDRA Gísli Ragnarsson lét 26. september sam-
RITA kvæmt eigin ósk af starfi deildarstjóra,
er hann réðst forstöðumaður Ameríska
bókasafnsins í Reykjavík. Bryndís Isaksdóttir var sett bókavörður í